Cinque Terre II 2024

ATH!

FERÐIN ER FULLBÓKUÐ

Þessi geysivinsæla ferð kemur í tveimur útgáfum 2024, Cinque Terre II (21.-28. maí 2024) er með 15 – 25 km dagleiðumer en einnig er í boði Cinque Terre I (11.-18. maí 2024) með 7-15 km dagleiðum . Dagskráin er að öðru leyti eins. Ferðast verður með okkar rútu frá flugvelli Milano að Monterosso al Mare.  Þar verða höfuðstöðvar okkar þegar við flökkum um þetta stórkostlega svæði, Cinque Terre.

Cinque Terre eða Þorpin fimm, eru afskekkt sjávarþorp í Ítölskum þjóðgarði og eru á heimsminjaskrá UNESCO. Þorpin urðu vinsæll ferðamannastaður eftir að þau urðu aðgengileg með lestum á 20. öldinni. Þorpin eru þekkt fyrir ótrúlega fegurð og eru fullkominn áfangastaður fyrir göngu- og hlaupaferðir. Svo má ekki gleyma að Ítalir eru þekktir fyrir góðan mat og frábæran ís. Meðalhiti í maí eru 18°C, fullkomið hlaupaveður!

maí, 2024
Verð:
259.000 kr.
Skráning er lokuð
Lengd:
8 dagar
Ferð
hefst eftir
00
Daga
:
00
Klst
:
00
Min
Um ferðina

Hreyfing og fegurð

  • Markmið ferðarinnar er að njóta þess að hreyfa sig í fallegri náttúru. Dagleiðirnar verða á bilinu 15-25 km í fjöllum í þessari ferð en 7-15 km í Cinque Terre I. Lengstu dagleiðunum er yfirleitt skipt í tvennt þar sem hægt er að fá sér hádegismat og skoða sig um áður en haldið er áfram. 
  • Þessi ferð er hugsuð fyrir meðalhraða til hraða hlaupara á meðan Cinque Terre I er fyrir hæga til meðalhraða hlaupara og öflugt göngufólk. 
  • Við gistum í bænum Monterosso al Mare, huggulegum sjávarbæ. Hótelið er nálægt lestarstöðinni, en lestarferðir verða mikið nýttar. 
  • Stefnt er að því að hlaupa alla dagana nema einn, en þá verður hægt að komast á ströndina, versla eða fara í siglingar. 

Umsagnir

Fyrir hverja?

Í fyrsta skiptið bjóðum við upp á tvær útgáfur af þessari vinsælu ferð. Þessi ferð (CT-II) fer svipaðar og jafnvel aðeins lengri dagleiðir en hefðbundna ferðin og CT-I fer styttri dagsleiðir en hefðbunda ferðin.

Báðar ferðir eru opnar öllum en ársáskrifendur Hlaupasamfélags Náttúruhlaupa fá sérverð.

Cinque Terre II er hugsuð fyrir meðalhraða og hraða hlaupara. Farið verður 15-25 km dagleiðir og hækkun getur verið umtalsverð. Lagt er upp með að njóta.

Miða má við að vera 3-5 klst á fótum á hverjum degi, en það verður mikið gengið þar sem um fjöll og mikilfenglegt landslag er að ræða. Gengið verður upp flest allar brekkur en hlaupið á jafnsléttu og niður á við. 

Álagið er upplagt fyrir svarta, silfurgrá og vínrauða í hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa og fólk sem hleypur reglulega a.m.k. 10-15 km og eru vön fjalllendi. Markmiðið er að njóta þess að hreyfa sig í góðu veðri í fallegri náttúru en fyrir hægari hlaupara mælum við með Cinque Terre I.

Hægt er að komast á hvern áfangastað með þægilegum opinberum samgöngum. Upplagt er því að taka t.d. maka með sem er ekki hlaupandi og hann getur hitt hópinn á áfangastað. Einnig má auðveldlega sleppa úr hlaupi einn og einn dag eða hluta leiðarinnar 

Ingvar og Þóra Bríet á Cinque Terre svæðinu

Ingvar Hjartarson og Þóra Bríet Pétursdóttir verða fararstjórar ferðarinnar en þau hafa oftast verið farastjórar í Cinque Terre ferðum Náttúruhlaupa og fengið mikið hrós fyrir.

Ingvar vari í námi á Ítalíu og þekkir vel til svæðisins og ítölsku menningarinnar. Ingvar hefur verið leiðtogi í hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa síðan 2017, þjálfað á grunnnámskeiðum Náttúruhlaupa ásamt því að þjálfa skokkhópa og byrjendanámskeið hjá Skokkhópi Fjölnis. Ingvar var einnig fararstjóri í Elbu-ferðinni hjá Náttúruhlaupum 2019. Ingvar hefur verið á hlaupum síðan 2010 og er einn af hröðustu utanvegahlaupurum landsins en kann (sem betur fer fyrir okkur hin) einnig að hlaupa hægar 😁

Þóra Bríet hefur lengi verið leiðtogi í hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa og þjálfari á grunnnámskeiðum. Hún hefur auk þess starfað sem leiðsögukona hjá Arctic Running og fleiri ferðaþjónustufyrirtækjum. 

Innifalið í verði:

  • Gisting – 7 nætur í Monterosso al Mare
  • Matur – Morgunmatur innifalinn alla daga Kvöldmatur á degi 2 og 7
  • Allar samgöngur – fyrir utan flug
  • Fararstjóri / leiðsögn allar leiðirnar
  • Dagspassi í Cinque Terre (bara þennan eina dag sem við munum nota hann)

Ekki innifalið í verði:

  • Flug til og frá Mílanó
  • Hádegisverður, drykkir 
  • kvöldmatur (fyrir utan tvö kvöld).
Dagskrá: Ath. Breytingar geta orðið á dagskrá, hvað varðar lengd og uppröðun hlaupaleiða.

Hægt er að fá beint flug báðar leiðir með Icelandair sem við miðum ferðina út frá. Þeir sem vilja koma fyrr eða fara seinna og gera meira út úr fríinu geta gert það en allir þurfa að vera á flugvellinum í Mílanó þegar vélin frá Icelandair lendir síðdegis því þaðan fer okkar rúta með okkur til Monterosso al Mare þar sem við gistum allar 7 næturnar.

Hótelið í Monterosso býður ekki upp á kvöldverð en nokkrir huggulegir veitingastaðir eru í bænum. Fólk velur því sjálft hvar það borðar kvöldmat en þó verður sameiginlegur kvöldmatur á degi 2 og síðasta kvöldið.

Á degi 5 (25. maí) er hvíldardagur/frídagur. Hægt að fara á ströndina, versla, siglingar o.fl. Boðið verður upp á auka hlaup fyrir þá sem vilja.

Aðra daga að undanskildum ferðadögum er hlaupið/gengið á skemmtilegum stígum á þessu fallega svæði. Ferðast verður á milli staða með opinberum samgöngum (innifalið í verðinu). 

Okkar rúta fer með okkur beint á flugvöllin í Mílanó síðasta daginn.

Umsagnir

Myndir

Myndir

Spurningar og svör

Spurningar og svör

No data was found