
Já, tímamörkin eru 7 klukkustundir. Ljúka þarf hlaupinu fyrir kl. 16.00
Nei, því miður eru hundar hvorki leyfðir í Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa né Náttúrugöngu.
Við elskum hunda og skiljum vel að hundaeigendur vilji hafa þá með en við þurfum að taka tillit til annarra þátttakenda. Sumir þátttakendur eru til dæmis hræddir við hunda og aðrir eru með hundaofnæmi. Við þurfum að taka tillit til þeirra.
Góða trail-hlaupaskó, þægileg íþróttaföt, vindjakka, húfu og vettlinga. Á veturnar er skylda að eiga höfuðljós og hlaupabrodda (t.d. frá Kahtoola). Þeir sem hlaupa lengur en eina klukkustund í senn þurfa að eiga hlaupabakpoka til að bera næringu, vökva og fatnað. Þátttakendur í gráum og grænum hóp þurfa að eiga GPS-hlaupaúr með leiðsögn (navigation) og kunna að fara eftir trakki, sjá hér: https://vimeo.com/409768173 Það á einnig við um þátttakendur á undirbúningsnámskeiðum fyrir Laugavegs- og Fimmvörðháls hlaupin.
Upplifunaræfingar snúast um að njóta hlaupsins, náttúrunnar og félagsskaparins. Eftir hlaupið ætti okkur því að líða eins og við gætum haldið áfram að hlaupa, ekki vera örmagna af þreytu.
Laugardagsæfingar hlaupasamfélagsins eru þannig hugsaðar að allir fái a.m.k. 90 mínútna hlaup/hreyfingu burtséð frá hvaða vegalengd hentar þeim/hversu langt þeir fara á þessum tíma. Einnig má alltaf auka vegalengdina með því að fara sjálf/ur aukahring fyrir eða eftir æfinguna og mörg gera það. Í öllum hópum eru þátttakendur sem vilja gjarnan hlaupa lengra á sínum hraða. Ef viðkomandi ræður hins vegar ekki við hraðann í hópum sem hlaupa lengri vegalengdir þarf hann að lengja hlaupið á eigin vegum. Þetta er gert til að æfingarnar taki ekki of langan tíma.
Ekki er nauðsynlegt að taka orkugel með á laugardagsæfingar, en gott getur verið að hafa eitt slíkt eða annað orkuríkt nesti meðferðis (t.d. súkkulaði eða þurrkaða ávexti) til öryggis. Það er þó góð regla að hafa vökva og næringu í bílnum og fá sér á leiðinni heim. Ef æfingin er lengur en 90 mínútur, þarf að hafa vökva og næringu með.
Senda þarf skriflega beiðni um afbókun. Mælst er til að notað sé netfangið [email protected] vegna ferða og [email protected] vegna námskeiða.
Ef um dagsferð er að ræða, fæst 100% endurgreitt ef meira en tveir dagar eru í ferðina.
Ársáskrifendur binda sig í eitt ár, hvort sem greitt er með mánaðargreiðslum eða eingreiðslu. Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa eftir árið nema henni sé sagt upp með því að senda póst á [email protected].
Að bindingartíma loknum geta þeir sem greiða með mánaðargreiðslum sagt áskriftinni upp með eins mánaðar fyrirvara.
Áskrifendur með mánaðaráskrift án bindingar skuldbinda sig til að greiða fyrir einn mánuð í senn. Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa í hverjum mánuði nema henni sé sagt upp með því að senda póst á [email protected]. Segja þarf áskriftinni upp með tveggja vikna fyrirvara.
Námskeiðsgjöld fást endurgreidd að fullu ef afbókun berst að minnsta kosti tveimur dögum áður en námskeið hefst. Berast þarf tilkynning þess eðlis á [email protected]. Eftir að námskeiðið hefst, er gjaldið óendurkræft.
Götuhlaupaskór duga í mörgum tilfellum en við mælum með því að þátttakendur fjárfesti í náttúruhlaupaskóm (trail-skór eða utanvegaskór). Náttúruhlaupaskór eru hannaðir til að veita góða vörn fyrir fæturna og grípa betur á t.d. blautum steinum, í drullu eða í lausamöl. Í slíkum tilfellum eru þeir nauðsynlegur öryggisbúnaður.
Það eru tvær leiðir til að nálgast kvittanir og sjá áskriftir.
Aðeins er hægt að ná í kvittun á PDF-formi í gegnum tölvu eða vafra á síma.
Í appinu
1. Lengst niðri til hægri sjáið þið 3 láréttar línur og smellið á þær.
2. Á „Mitt svæði“ er hægt að skoða stillingar, áskriftir, kvittanir og það sem er ógreitt.
Í vafra (tölvu)
1. Farið í vafra og inn á síðuna: www.abler.io/shop/natturuhlaup
2. Skráið ykkur inn efst í hægra horninu. Þegar búið er að skrá sig inn er hægt að smella á reikningar og áskriftir efst í hægra horninu.
3. Hægt er að hlaða niður kvittunum á PDF-formi undir „Reikningar“.
Námskeiðsgjöld fást endurgreidd að fullu ef afbókun berst að minnsta kosti tveimur dögum áður en námskeið hefst. Berast þarf tilkynning þess eðlis á [email protected]. Eftir að námskeiðið hefst, er gjaldið óendurkræft.
"*" indicates required fields

"*" indicates required fields
"*" indicates required fields