Loksins keppnishlaup um Fimmvörðuháls!
Leiðin um Fimmvörðuháls er ein fegursta gönguleið landsins. En hún er ekki síður vinsæl hlaupaleið.
Hvort sem áherslan er á að ná góðum tíma eða einfaldega njóta upplifunarinnar, vertu með!
laugardaginn 14. ágúst 2021
5VH Trail Run
Fimmvörðuhálshlaupið verður haldið í fyrsta skiptið laugardaginn 14. ágúst.
Hlaupið verður frá Skógum að Volcano Huts í Húsadal. Leiðin er um 28 km með rúmlega 1000 m. hækkun og álíka mikilli lækkun.
Verð
Hagstæðasta verðið fæst með því að tryggja sér aðgang fyrir 15. febrúar.
Ársáskrifendur í hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa fá afsláttarkóða upp á 15% sem gildir á tvö fyrri tímabilin (til 30. júní). Enginn afsláttur er veittur eftir 30. júní. Ekki er hægt að fá afsláttinn eftir á hafi viðkomandi greitt fullt verð án þess að nýta kóðann.
Til 15. febrúar
Almennt verð: 16.900 kr
Náttúruhlaup: 15 % afsl.
Frá 15. feb. – 30. júní
Almennt verð: 19.900 kr
Náttúruhlaup: 15 % afsl.
Eftir 30. júní
Almennt verð: 22.900 kr
Náttúruhlaup: 22.900 kr
Leiðin um Fimmvörðuháls að Volcano Huts
Leiðin um Fimmvörðuháls er ein fegursta og vinsælasta gönguleið landsins. Hún er ekki síður vinsæl náttúruhlaupaleið. Frá Skógum liggur leiðin meðfram Skógá þar sem ótal fossar blasa við, hverjum öðrum fallegri. Farið er yfir göngubrú, áin yfirgefin og farið austari leiðina meðfram akveginum og framhjá Balvinsskála. Þar verður drykkjarstöð. Nú er mesta hækkunin að baki en heildarhækkun er um 1000 m. Næst er hlaupið um 3 km um Fimmvörðuhálsinn sjálfan þar til komið að Goðahrauni sem rann í eldgosinu árið 2010 úr gígunum, Magna og Móða. Hlaupið er í gegnum Goðahraun, framhjá gígunum.
Fljótlega eftir Goðahraun hefst lækkunin. Farið er niður Bröttufönn og síðan Heljarkamb. Þar eru keðjur til stuðnings stuttan spotta og þarf að fara varlega. Leiðin er þó vel fær, jafnvel fyrir lofthrædda. Við tekur Morinsheiðin sem er flöt og þægileg að hlaupa. Þar eftir heldur lækkunin áfram og fljótlega er hlaupið yfir Kattahryggi. Þar þarf að taka tillit og fara varlega en sumir verða lofthræddir. Lækkunin heldur áfram niður í Strákagil. Þaðan er hlaupið tiltölulega þægilega leið framhjá Básum, göngubrúna yfir Krossá og að Volcano Huts í Húsadal.
Fyrir hverja er Fimmvörðuhálshlaupið?
Leiðin er krefjandi. Viðkomandi þarf að vera í góðri þjálfun og ráða við hækkun og lækkun á hálendinu. Ekki er þó nauðsynlegt að fara hratt yfir. Fyrir fólk í góðu formi er vel hægt að ganga leiðina rösklega á innan við 7 klst.
Hvort sem ætlunin er að ná sem bestum tíma eða nýta tækifærið og njóta leiðarinnar, ættu allir sem eru í formi og hafa heilsu til að klára leiðina geta gert það innan tímamarka.
Keppnisleiðin frá Skógum í Húsadal