Keppnishlaup

Keppnishlaup um Fimmvörðuháls

Fimmvörðuháls er ein fegursta gönguleið landsins en hún er ekki síður frábær hlaupaleið.

Dagsetningar

14. ágúst 2027 kl. 09:00

Staða

Skráning opnar í nóvember

Verð

19.900 - 23.900 kr.

Lengd

28 km

Hlaupaleið

Byrjar við Skóga og endar í Volcano Huts Húsadal
Dagsetningar
14. ágúst 2027 kl. 09:00
Verð
19.900-23.900 kr.

5VH Trail Run

Fimmvörðuhálshlaupið verður haldið í sjöunda skiptið laugardaginn 14. ágúst 2027. Leiðin liggur frá Skógum að Volcano Huts í Húsadal, Þórsmörk. Leiðin er um 28 km með um 1500m hækkun og álíka mikilli lækkun.

Hlaupið fer fram á háldendinu

Um það bil 10km af hlaupaleiðinni er yfir 800m hæð yfir sjávarmáli. Það er mun kaldara á þeim hluta leiðarinnar og stundum getur verið slagveður á hálsinum en fínasta veður neðar. Ekki má vanmeta þetta og við biðjum keppendur að vera öllu viðbúnir.
Kattahryggur

Kattarhryggir

Fimmvörðuhálsleiðin er krefjandi. Sýna þarf sérstaka varúð og taka tillit til annarra keppenda hjá Heljarkambi og Kattarhryggjum. Leiðin er traust en getur reynst lofthræddum áskorun, og færið er breytilegt eftir veðri og aðstæðum, sérstaklega efst á hálsinum á milli jöklanna.

Verð

Skráðu þig fyrir 1. janúar og tryggðu þér hagstæðasta verðið!
19.900 kr.
Til 31. desember
Bolur valkvæður (ekki innifalinn)
22.900 kr.
Frá 1.janúar til 30. júní
Bolur valkvæður (ekki innifalinn)
23.900 kr.
Eftir 30. júní
Bolur fæst ekki

Ársáskrifendur í hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa, Náttúrugöngu og NH vinum fá afsláttarkóða sem gefur 15% afslátt sem gildir tvö fyrri tímabilin (til 30. júní). Enginn afsláttur er veittur eftir 30. júní. Ekki er hægt að fá afsláttinn eftir á hafi viðkomandi greitt fullt verð án þess að nýta kóðann.

Endurgreiðsla fæst ekki en hægt er að gera nafnabreytingar til og með 31. júlí á www.netskraning.is. Náttúruhlaup eru ekki milliliður á endursölu á miðum og nýr eigandi fær ekki aðra stærð á bol ef upphaflegi eigandi pantaði bol. Verð og fyrirkomulag á endursölu er algjörlega á milli seljanda og kaupanda. Varist að framkvæma nafnabreytinguna fyrr en búið er að greiða til kom í veg fyrir að svindlað sé á ykkur. 

Fyrirkomulag

Keppnisnúmer, brautarvarsla og tímataka
Drykkjarstöðvar með vatni, íþróttadrykk og banana við:
Baldvinsskála (13km)
Strákagil (23km)
Volcano Huts
Sturtu- og klósettaðstaða að hlaupinu loknu
Þátttökuverðlaun
Trúss frá Skógum að Volcano Huts
Heilbrigðisstarfsfólk í Volcano Huts
Hamborgari og franskar í lok hlaupsins (einnig vegan borgari)
Rútuferðir og keppnisbolur. Með því að smella á flipana að ofan má sjá hvaða rútuferðir eru í boði. Keppnisbolurinn er valkvæður og kostar aukalega 6000 kr. Hægt er að versla bæði rútuferðir og keppnisbol við skráningu til 30.júní.
Maturinn í Volcano Huts eftir hlaup er innifalinn í verðinu.
Grillaður hamborgari m. frönskum
Veggie borgari m. frönskum
Hringferð frá Reykjavík fyrir keppendur – 19.800 kr.
Volcano Huts > Skógar, önnur leið – 12.500 kr. (keppendur)
Hringferð frá Reykjavík fyrir áhorfendur (einnig innifalið far frá Skógum í Húsadal) – 21.800 kr.
Hringferð frá Skógum fyrir áhorfendur – 16.500 kr.
Far yfir Krossá, báðar leiðir – 6.500 kr á mann. (Áhorfendur á fjórhjóladrifnum jeppum sem komast yfir hinar árnar)

Keppnisleiðin

Ætið skal fara eftir merkingum og við ábyrgjumst ekki að keppnisleiðin verði nákvæmlega eins og gps leiðin. Sækja má skrána hér fyrir neðan.

Tölulegar upplýsingar
- Vegalengd: 28,1 km
- Mesti halli: 13°
- Heildarhækkun: 1.554 m
- Heildarlækkun: 1.370 m
- Lægsti punktur: 18 m.y.s.
- Hæsti punkt.: 1.049 m.y.s

Reglur hlaupsins

Aldurstakmark og skilyrði fyrir þátttöku í 5VH Trail Run er 18 ára í samræmi við leiðbeiningar FRÍ um framkvæmd utanvegahlaupa.

Keppnisstjórum er heimilt að aflýsa eða stoppa hlaupið vegna utanaðkomandi aðstæðna.

Keppendur skuldbinda sig til að:

Stunda viðeigandi þjálfun til að ljúka keppni innan tímamarka.

Klára þarf keppnina á innan við 7 klst. Tímamörk hjá Baldvinsskála eru 3 klst og hjá Strákagili 6 klst. 

Stunda heiðarlega keppni og fylgja settri leið skipuleggjenda.

Bera virðingu fyrir náttúrunni og henda engu rusli á leiðinni nema við drykkjarstöðvar.

Klæða sig eftir veðri og veðurspá. Hafið í huga að veður getur verið allt öðruvísi upp á jöklinum en í upphafi hlaupsins.

Hafa með sér nægja næringu og vökva til að klára keppni.

Sýna öðrum keppendum og göngufólki tillitsemi á leiðinni.

Hafa keppnisnúmer sýnilegt allan tímann.

Keppendum ber að aðstoða aðra keppendur í neyð þar til önnur viðeigandi hjálp berst.

Keppnisstjóri ber ekki ábyrgð á hlaupurum vegna utanaðkomandi áhrifa eins og veðurs og náttúruhamfara.

Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni en eru hvattir til að leita viðeigandi aðstoðar ef um slys eða veikindi er að ræða. Björgunarsveitafólk verður til staðar á drykkjarstöðvum og læknir í markinu.

Keppnisstjóri getur vísað öllum frá keppni sem fylgja ekki settum reglum.

Hlaðinn sími

Bakpoki/hlaupavesti

Álteppi (fæst ódýrt í flestum apótekum)

Flauta (fylgir með mörgum hlaupavestum)

Léttur skel jakki. Ef rigningarspá þarf hann að hafa hettu og þola minnst 10.000 mm.

Húfa/buff, vettlingar

A.m.k. 1 L af vökva

Einhver næring (dæmi: gel, súkkulaði. Gott að nota það sem hefur reynst vel á æfingum)

Utanvegahlaupaskór (trail skór)

Ef rigningaspá þarf skelbuxur sem þola minnst 10.000 mm.

Glacier

Búnaður sem mælt er með

Auka fatnaður (t.d. þunn peysa, skelbuxur)

Sólgleraugu

Sólarvörn

Aukabatterí fyrir símann

112 Where ARE U appið

Taska með handklæði, þurrum fötum og skóm til að fara í eftir keppnina. Regnföt og hlý föt eftir veðurspá þar sem bíða þarf í Volcano Huts þar til rútan fer. Öllum þátttakendum býðst að láta trússa slíka tösku frá starti (Skógum) að marki (Volcano Huts).

Öryggi

Öryggi er á ábyrgð þátttakenda. Skipuleggjendur munu gera eftirfarandi til að lágmarka hættu

Leiðin verður vel merkt

Björgunarsveitin Dagrenning sér um drykkjarstöðvar við Baldvinsskála og í Strákagili. Þeir verða með sjúkrabörur og tæki til að nálgast fólk í neyðartilfellum.

Brautarverðir verða við Kattarhryggi og í Langadal.

Læknir og hjúkrunarfræðingur verða í markinu.

Fimmvörðuháls

Ferðir í boði

Hringferð: Reykjavík > Skógar og Volcano Huts > Reykjavík – 14.000 kr. (bara keppendur)

Skógar > Volcano Huts – 6.000 kr. (fyrir aðstandendur sem vilja fá far í markið kl. 09:15)

Volcano Huts > Skógar – 9.000 kr. (keppendur og/eða aðstandendur)

Ein vinsælasta leið landsins

Leiðin um Fimmvörðuháls er ein fegursta og vinsælasta gönguleið landsins. Hún er ekki síður skemmtileg náttúruhlaupaleið. Frá Skógum liggur leiðin meðfram Skógá þar sem ótal fossar blasa við, hverjum öðrum fallegri. Farið er yfir göngubrú, áin yfirgefin og farið austari leiðina meðfram akveginum og framhjá Balvinsskála. Þar verður drykkjarstöð. Nú er mesta hækkunin að baki en heildarhækkun er um 1400 m.

Næst er hlaupið um 3 km um Fimmvörðuhálsinn sjálfan þar til komið að Goðahrauni sem rann í eldgosinu árið 2010 úr gígunum Magna og Móða. Hlaupið er í gegnum Goðahraun, framhjá gígunum. Fljótlega eftir Goðahraun hefst lækkunin. Farið er niður Bröttufönn og síðan Heljarkamb. Þar eru keðjur til stuðnings stuttan spotta og þarf að fara varlega. Leiðin er þó vel fær, jafnvel fyrir lofthrædda. Við tekur Morinsheiðin sem er flöt og þægileg að hlaupa. Þar eftir heldur lækkunin áfram og fljótlega er hlaupið yfir Kattahryggi. Þar þarf að taka tillit og fara varlega en sumir verða lofthræddir. Lækkunin heldur áfram niður í Strákagil. Þaðan er hlaupið tiltölulega þægilega leið framhjá Básum, göngubrúna yfir Krossá og að Volcano Huts í Húsadal.
Ofurhress hlaupari :)

Fyrir hverja er Fimmvörðuháls-hlaupið?

Leiðin er krefjandi. Viðkomandi þarf að vera í góðri þjálfun og ráða við hækkun og lækkun á hálendinu. Ekki er þó nauðsynlegt að fara hratt yfir. Fyrir fólk í góðu formi er vel hægt að ganga leiðina rösklega á innan við 7 klst en það eru tímamörkin.

Hvort sem ætlunin er að ná sem bestum tíma eða nýta tækifærið og njóta leiðarinnar ættu allir, sem eru í formi og hafa heilsu til, að geta klárað leiðina innan tímamarka.

Spurningar og svör

Já, 7 klst. Klára þarf hlaupið fyrir kl. 16:00

Í raun er það einstaklingsbundið þó flestum finnist bakpokarnir þægilegri auk þess sem þeir eru plássmeiri. Svona heilt yfir þá er í styttri hlaupum í góðu veðri nóg að vera með hlaupabelti en í vetrarhlaupum er gott að hafa hlaupabakpoka og geyma þá auka húfu og vettlinga ásamt einhverri orku í pokanum.

Götuhlaupaskór duga í mörgum tilfellum en við mælum með því að fólk fjárfesti í náttúruhlaupaskóm (trail skór eða utanvegaskór). Náttúruhlaupaskór eru hannaðir til að veita góða vörn fyrir fæturna og grípa betur á t.d. blautum steinum, í drullu eða í lausamöl. Í slíkum tilfellum eru þeir nauðsynlegur öryggisbúnaður.

úpplysingar

Keppnishlaup um Fimmvörðuháls

Dagsetningar
14. ágúst 2027 kl. 09:00
Staða
Skráning opnar í nóvember
Verð
19.900-23.900 kr.
Lengd
28 km
Hlaupaleið
Byrjar við Skóga og endar í Volcano Huts Húsadal

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields