Tenerife 2025

Því miður náðist ekki lágmarksfjöldi í þessa ferð. Því er búið að breyta henni í æfingaferð sem er töluvert ódýrari (249.000 kr í staðinn fyrir 324.000 kr) en ekki jafn mikið innifalið.

Þó er flug, hótel og 5 dagsferðir innifaldnar en boðið verður upp á lengri/fleiri vegalengdir og aukin krafa gerð á sjálfstæði á hlaupaleiðunum.

Skoðið æfingaferðina hér eða með því að smella á skráningarhnappinn.

Athugið að greiða þarf staðfestingargjald (62.000 kr) fyrir 2. desember.

  • Febrúar 2025
  • Skráning er opin
  • Verð: 324.000 kr.
  • Lengd: 8 dagar
  • Tímasetning: 27. feb.-6. mars 2025
  • Hlaupaleiðir: Fimm dagsferðir um alla eyjuna með einka rútu.
  • Verð fyrir ársáskrifendur Náttúruhlaupa
    314.000 kr.
  • Einstaklingsherbergi: 43.000 kr.
00

Dagar Dagur

00

Klst Klst

00

mín Mín

Tenerife fyrir öll getustig!

Náttúruhlaup bjóða upp á ferð til þessa vinsæla áfangastaðar. Sólríku Kanaríueyjunnar í suðri, Tenerife! Birkir og Gunnur munu hlaupa fjölbreyttar leiðir með hópnum. Margir vita að strendurnar eru dásamlegar á Tenerife og veðrið er alltaf gott.

Færri hafa þó uppgötvað hversu stórbrotið og fallegt landslagið er á eyjunni en hún er draumastaður náttúruhlaupara sem vilja skoða sig um á fjölbreyttum og góðum stígum. Komdu með og uppgötvaðu þessa paradís náttúruhlaupara í skemmtilegum félagsskap!

Boðið verður upp á fimm hlaupa á mismunandi stöðum á eyjunni og einn frjálsan dag inn á milli þar sem má sleikja sólina og slaka á eða gera eitthvað annað úr deginum. Allar leiðir eru 10-15 km langar á mismunandi náttúrustígum. 

Gist verður á fjögurra stjörnu hóteli í Los Christianos (nálægt Amerísku ströndinni) en sú staðsetning er einstaklega hentug því þar er flott fjalllendi (Montana de Guaza) og náttúrustígar í göngufæri fyrir þá sem vilja hlaupa eða ganga meira. Beint flug og matur flesta daga er einnig innifalið í verðinu.

Lagt verður upp með að njóta allan tímann og því hentar ferðin flestum getustigum Náttúruhlaupa.

Fyrir hverja er ferðin?

Ferðin er hugsuð sem skemmtilegt og þægilegt frí fyrir hlaupara af öllum getustigum og reynslumikið göngufólk. 

Leiðirnar verða sérstaklega merktar fyrir hópinn og því geta allir farið á sínum hraða, hvort sem viðkomandi vill hlaupa frekar hratt eða hægt. 

Í frítíma sínum hefur fólk val um að bæta við vegalendir á skemmtilegu stígasvæði í grennd við hótelið.

Tenerife býður upp á ótrúlega fjölbreytt og stórbrotið landslag. Allt frá töfrandi skógum í stórkostlega fjallasýn. Eins og Ísland, er Tenerife eldfjallaeyja og minnir hraunið á heimahaga en annað má segja um veðrið. Hiti er 20-25°C við hótelið en hlaupin/göngurnar fara fram í fjalllendi Tenerife þar sem er um 15°C hiti.

Við hlaupum/göngum í Teide þjóðgarðinum (2000m) þar sem horft er niður á skýin og hlaupið í mögnuðu hraunlögðu fjalllendi á dásamlegum stígum. Einnig könnum við græna hluta eyjunnar í norðri og hlaupum um kynngimagnaða stíga Anaga þjóðgarðsins!

Allar leiðir eru 10-15 km og samanlögð hækkkun er yfirleitt 400-600 m. Meðaltals vegalengd er 12 km og meðaltals hækkun 480 m.

Þeir sem vilja hlaupa meira, hafa ótrúlega skemmtilegt „leiksvæði“ nálægt hótelinu sem kynnt verður fyrir áhugasömum. Montana de Guaza stígakerfið er mjög fjölbreytt og skemmtilegt og hinum megin við fjalllendið (Palm Mar) er að finna æðislegt náttúrusvæði með fullt af stígum og litlum hæðum.

Fararstjórar eru Birkir Már Kristinsson og Gunnur Róbertsdóttir  

Þau eru bæði sjúkraþjálfarar að mennt og reynslumiklir hlaupaþjálfarar. Gunnur er auk þess menntuð leiðsögukona. Hún sér um byrjendur á grunnnámskeiði NH og tekur vel á móti hægari hlaupurum á meðan Birkir leyfir hraðari hlaupurum að fá útrás.

Það er alltaf líf og fjör í kringum þau Birki og Gunni.

Innifalið í verði:

Beint flug flug með Icelandair.

Fararstjórn

Gisting á fjögurra stjörnu hóteli í 7 nætur.

Akstur á milli flugvallar og hótels við komu og brottför.

5x rútuferðir/hlaupaferðir

Fullt fæði flesta daga

Ekki innifalið í verði:

Drykkir

Ferðatryggingar

Dagskrá ferðarinnar

Dagskrá: Ath. Breytingar geta orðið á dagskrá, hvað varðar lengd og uppröðun hlaupaleiða.

Boðið verður upp á 5 fjölbreytta hlaupadaga á mismunandi stöðum á eyjunni og einn frjálsan dag inn á milli.

Allar leiðir eru 10-16 km langar á mismunandi náttúrustígum. Oft er um töluverðar hækkanir að ræða á leiðunum og því reyna þær á þó vegalengdir séu ekki lengri en þetta.

Dagsferðirnar eru mislangar en yfirleitt er lagt af stað frá hótelinu um 9:00 og komið aftur milli 14-18. Oftast nær fólk því að sleikja sólina eftir hlaupið á þaki hótelsins eða við sundlaugasvæðið fyrir kvöldmat á hótelinu þar sem fjölbreyttur matur er í boði.

Á frídeginum má t.d. hlaupa á skemmtilegum stígum í nágrenni hótelsins, fara á ströndina, fara í gokart, bátsferð eða versla í stórri verslunarmiðstöð ekki langt frá hótelinu.


Ég mæli með Tene-ferð NH fyrir alla þá sem vilja njóta þess að hlaupa í stórbrotinni náttúru og þægilegum hita.

Tímasetning ferðarinnar er frábær til að brjóta upp íslenska veturinn.

Skipulag og fararstjórn eru til fyrirmyndar sem og upplýsingagjöf dag hvern.

Hlaupaleiðirnar eru fjölbreyttar og hægt er að einstaklingsmiða vegalendir og tíma eftir ólíkum þörfum.

Stóri bónusinn er síðan allir nýju hlaupavinirnir sem þú eignast 😊

Máney Sveinsdóttir


Frábær fararstjórn og félagsskapur í fjölbreyttu landslagi. Gaman hvað hægt var að sníða dagskrána að fjölbreyttum hópi hlaupara.

Anna Sigga


Frábært fólk, skemmtilegar hlaupaleiðir í fallegu umhverfi.

Geggjað að komast í sól og hita í Febrúar. Mæli með.

Takk fyrir mig

Beggi

Dásamleg ferð í alla staði.

Farið var um víðan völl og hlaupið í mjög fjölbreyttri náttúru á skemmtilegum stígum.

Fararstjórarnir voru traustir og skemmtilegir og buðu upp á frábæran sveigjanleika í vegalengdum.

Nóg að borða, yndislegur félagsskapur og tóm gleði.

Takk fyrir mig.

Erla

Tenerife 2025

  • Febrúar 2025
  • Skráning er opin
  • Tímasetning: 27. feb.-6. mars 2025
  • Hlaupaleiðir: Fimm dagsferðir um alla eyjuna.
  • Lengd: 8 dagar
  • Verð: 324.000 kr.
  • Einstaklingsherbergi:
    43.000 kr.
  • Staðfestingargjald:
    88.000/78.000 kr.
    Óendurkræft.
  • Lágmarksþátttaka 10 manns
  • Hafðu samband: [email protected]
Náttúruhlaup eru rekin af Arctic Running. Við leggjum áherslu á að njóta þess að hlaupa í fallegri náttúru. Kennitala: 5­701­12-03­10. VSK númer 122691.
Skráðu þig á póstlista
Fáðu fréttir af Náttúruhlaupum.
Öll réttindi áskilin © Náttúruhlaup

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields