Bakgarður Heiðmörk

Allir geta tekið þátt í Bakgarðshlaupinu. Þú þarft aðeins að treysta þér til að fara 6,7 km á einum klukkutíma. Hversu oft þú gerir það, er undir þér komið!

sep, 2024
Verð:
0 kr.
Skráning er lokuð
Lengd:
6,7km

Bakgarður Heiðmörk
Iceland Backyard Ultra

Verður haldinn í fimmta sinn laugardaginn 21. september 2024. Skráning opnar í vor. Keppnin verður hefðbundið bakgarðshlaup og fer eftir ákveðinni uppsetningu og reglum (https://backyardultra.com/rules/). Hlaupin verður 6,7km hringur á hverjum klukkutíma. Sá sem hleypur flesta hringi er sá eini sem klárar hlaupið og stendur uppi sem sigurvegari. Til að klára hlaupið verður viðkomandi að klára síðasta hringinn einn. Allir hringir verða ræstir á heila tímanum og er mikilvægt að koma sér á ráslínu tímanlega fyrir hvern hring.

Bakgarður Náttúruhlaupa
Hvernig virkar Bakgarður?

Keppnin verður með hefðbundnu sniði bakgarðshlaupa og fer eftir ákveðinni uppsetningu og reglum (http://backyardultra.com/rules/). Hlaupinn er rúmlega 6,7km hringur á hverjum klukkutíma. Sá sem hleypur flesta hringi er sá eini sem klárar hlaupið og stendur uppi sem sigurvegari. Til að klára hlaupið verður viðkomandi að klára síðasta hringinn einn. Hver hringur byrjar alltaf á heila tímanum og er mikilvægt að keppendur séu komnir í ráshólfið og hlaupi af stað þegar bjallan hringir á heila tímanum. Hlauparar sem eru ekki komnir í ráshólfið á heila tímanum þegar hringur er ræstur eru dæmdir úr keppni. Eftir hvern hring má nota tímann sem er eftir af klukkutímanum til að hvílast og undirbúa sig fyrir næsta hring. Heildarvegalengd hlaupara sem klárar 24 hringi (24 klukkutímar) er 100 mílur (160,8km).

Greiðsluskilmálar

Verðið í hlaupið er greitt við skráningu.

Hlaupið endurgreiðir ekki skráningargjaldið. Nafnabreytingar verða leyfðar til og með  9. september.

Reglur

Aldurstakmark í hlaupið er 18 ára.

Sjá nánar almennar reglur í bakgarðshlaupum: http://backyardultra.com/rules/.

Keppendur fá sendar ítarlegar upplýsingar um fyrirkomulag og reglur í tölvupósti.

Innifalið í skráningu

  • Keppnisnúmer og tímataka: Þú hleypur eins marga hringi og þú vilt. Keppninni lýkur þegar aðeins einn hlaupari nær að ljúka hring.
  • Hressing og veitingar á drykkjarstöð allan tímann.
  • Heitar veitingar á 4 klst fresti á meðan þú ert ennþá í keppninni.
  • Þátttökuviðurkenning
  • Góð drykkjarstöð og aðstaða fyrir hlaupara verður í Mjölnisheimilinu. Lögð verður áhersla á skemmtilega og fjöruga umgjörð allan daginn. Starfsfólk og sjálfboðaliðar Náttúruhlaupa verða til taks fyrir þátttakendur í hvíldartímanum. 
Keppnisleiðin

Keppnisleiðin

Sjá nákvæmt kort og gpx skrá af hlaupaleiðinni hér
Mikilvægar upplýsingar

Mikilvægar upplýsingar

Verðlaun

Þátttöku-/DNF viðurkenning fyrir alla sem taka þátt. Sá sem klárar Bakgarðshlaupið fær glæsileg verðlaun og viðurkenningu.

Drykkjarstöð og aðstaða fyrir hlaupara verður við Elliðavatnsbæ. Lögð verður áhersla á skemmtilega og fjöruga umgjörð allan daginn. Starfsfólk og sjálfboðaliðar Náttúruhlaupa verða til taks allan daginn fyrir þátttakendur í hvíldartímanum.

Skráningu lýkur á miðnætti 9. september að því gefnu að hlaupið verði ekki orðið fullt. Skráningargjöld verða ekki endurgreidd en hægt að gera nafnabreytingar til og með 9. september.

Keppendur sem ljúka að minnsta kosti 15 hringjum geta sótt um að gerast félagar í Félagi 100km hlaupara á Íslandi (www.100km.is)

Myndir

Myndir

Spurningar og svör

Spurningar og svör