Hlaupahelgi í Svíþjóð

Komdu með!  Löng helgi í náttúruperlu við Stokkhólm 🇸🇪😀

Við gistum tvær nætur í einföldum og sjarmerandi sænskum smáhýsum í fallegri náttúruperlu rétt hjá miðborginni. Fjögur gista saman en klósett og sturtuaðstaða er í sér byggingu. Fullt fæði er innifalið á meðan á dvöl okkar stendur en sunnudagurinn er að mestu frjáls. Þá má velja um að skoða borgina á eigin vegum eða kanna stígana enn betur.

Flug er ekki innifalið en miðað er við að fljúga út með Icelandair kl. 7:35 á föstudagsmorgun og tilbaka kl. 22:35 á sunnudagskvöldi.

Þessir þrír dagar nýtast því ótrúlega vel en þjálfarar og leiðtogar Náttúruhlaupa fóru í staffaferð þangað í fyrra og var mikil ánægja með staðsetningu og uppsetningu helgarinnar.

Flugið er ekki innifalið og ekki er mælt með að flugið sé keypt fyrr en lágmarksfjölda er náð og ferðin er staðfest. Mikilvægt er að staðfesta sem fyrst til að hægt sé gefa fólki grænt ljós að panta flug áður en verð hækkar.

  • 26.-28. sept. 2025
  • Skráning er opin
  • Verð: 119.000 kr.
  • Lengd: 3 dagar
  • Erfiðleikastig: Þægilegt
  • Hópastærð: 12-24
  • Verð fyrir áskrifendur: 109.000 kr.
  • Staðfestingarverð: 25.000 kr.
00

Dagar Dagur

00

Klst Klst

00

mín Mín

Hreyfing, fræðsla og frí

Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera á þrem dögum!

Við munum hlaupa í sænskum skógi, fara í ekta sauna og skella okkur í vatnið í kjölfarið, fræðast um og fínpússa hlaupastílinn OG fá frídag sem nýta má í miðborg Stokkhólmar eða hlaupa meira á þessu fallega svæði, leigja fjallahjól eða báta. 

Á föstudeginum fara öll skemmtilega 8 km leið en á laugardeginum má velja á milli 18km og 12km leið og auk þess verða léttar gæðaæfingar með áherslu á hlaupastíl. Ef eftirspurn verður eftir því, verður hægt að stytta 12km leiðina.

Farið verður dýpra í hlaupastíl en gert hefur verið á grunnnámskeiðum, bæði með fræðslu og hagnýtum æfingum og ráðum. Hvort sem þú hefur aldrei eða mikið hugsað út í hlaupastíl, græðir þú á þessari fræðslu.

Þú færð allt þetta á þremur dögum og þarft aðeins að taka þér einn frídag frá vinnu 🤩

 

Fyrir hverja

Hentar öllum getuhópum þar sem um mismunandi vegalengdir er að ræða og fræðsla sem allir hlauparar græða á.
 
Það verður vel tekið á móti byrjendum í hlaupum.
 
Eitthvað fyrir alla liti í Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa, sérstaklega gullgulua, appelsínugula, vínrauða og fjólubláa.
 
Öll eru velkomin í ferðina en ársáskrifendur í Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa og NH Vinir fá sérverð.

Fararstjórn

Birkir Már Kristinsson verður fararstjóri ferðarinnar. Á upplifunaræfingum verða  Katrín Lilja og Nína Berglind með honum til að halda utan um hópana. 

Birkir er sjúkraþjálfari og framkvæmdastjóri Náttúruhlaupa. Hann hefur kennt á grunnnámskeiðum Náttúruhlaupa frá því að fyrsta námskeiðið var haldið 2014. Hann hefur áhuga á hlaupstíl og hefur stöðugt verið að bæta þekkingu sína á því sviði.

Birkir ólst upp í Svíþjóð og talar því sænsku. Hann skipulagði helgarferð fyrir þjálfara og leiðtoga Náttúruhlaupa 2024 með sömu uppsetningu og nú er gert þó dagskráin hafi verið öðruvísi.

Birkir leggur áherslu á að fólk njóti þess að hlaupa í náttúrunni á eigin forsendum, burtséð frá getustigi.

Innifalið í verði:

Gisting – 2 nætur, 4 saman í kofa.

Matur – Morgunmatur innifalinn laugardag og sunnudag, hádegismatur á laugardegi, kvöldmatur föstudag og laugardag.

Einkarúta frá Arlanda að Hellasgården – rúta tilbaka fyrir þau sem vilja.

Fararstjóri / leiðsögn allar leiðirnar

Fræðsla í hlaupastíl

Ekki innifalið í verði:

Flug til og frá Stokkhólmi

Matur og drykkir á ferðalaginu til Svíþjóðar og á sunnudeginum eftir morgunmat.

Drykkir með hádegisverði og kvöldmat, annað en vatn.

Dagskrá ferðarinnar

Dagskrá: Ath. Breytingar geta orðið á dagskrá, hvað varðar lengd og uppröðun hlaupaleiða.

Hægt er að fá beint flug báðar leiðir með Icelandair sem við miðum ferðina út frá. Þeir sem vilja koma fyrr eða fara seinna og gera meira út úr fríinu geta gert það en allir þurfa að vera á flugvellinum í Mílanó þegar vélin frá Icelandair lendir síðdegis því þaðan fer okkar rúta með okkur til Monterosso al Mare þar sem við gistum allar 7 næturnar.

Hótelið í Monterosso al Mare býður ekki upp á kvöldverð en nokkrir huggulegir veitingastaðir eru í bænum. Fólk velur því sjálft hvar það borðar kvöldmat en þó verður sameiginlegur kvöldmatur á fyrsta og síðasta deginum.

Á degi 5 (15. maí) er hvíldardagur/frídagur. Hægt að fara á ströndina, versla, siglinga o.fl. 

Aðra daga að undanskildum ferðadögum er hlaupið/gengið á skemmtilegum stígum á þessu fallega svæði. Ferðast verður á milli staða með opinberum samgöngum (innifalið í verðinu).

Okkar rúta fer með okkur beint á flugvöllinn í Mílanó síðasta daginn.

Dagur 1

Ferðadagur
Sunnudagur 11. maí

– Ferðalag til Mílanó, lent á Malpenza flugvellinum. Hægt að fá beint flug með Icelandair sem lendir síðdegis. Hugsanlega er hægt að fá ódýrara flug með því að fljúga í gegnum London. Þeir sem vilja geta komið fyrr og gert meira úr fríinu.

– Okkar rúta fer frá Malpenza flugvellinum til Htl Palme, í Monterosso al mare. Þó þarf að taka lest síðasta hlutann þar sem rútur mega ekki fara alla leið.  Í Monterosso verður gist það sem eftir er ferðarinnar. Ferðalagið tekur um 4 klst.

– Tékkað inn á hótelið okkar. Sameiginlega kvöldmáltíð. 

Dagur 2

Monterosso
Mánudagur 12. maí

– Um 16km hlaup frá Monterosso til Levanto og tilbaka. Þau sem vilja stytta leiðina um helming geta tekið lest tilbaka.

– Fólk borðar kvöldmat á eigin vegum á veitingastöðum í Monterosso.

Dagur 3

Þjóðgarðurinn (8km + 12km)
Þriðjudagur 13. maí

– Hlaup til Vernazza, Corniglia (8km) og þaðan til Manarola/Riomaggiore (u.þ.b. 12km fjallahlaup með 700-900 m hækkun.

– Allir taka fyrra hlaupið en hægt að taka lest fyrir þá sem vilja sleppa seinna hlaupinu.

Dagur 4

Riomaggiore - Portovene - La Spezia (13km)
Miðvikudagur 14. maí

– Lest um morguninn til Riomaggiore.

– 13km fjallahlaup (Riomaggiore -> Portovenere).

– Sigling til baka til Monterosso.

Dagur 5

Hvíldardagur
Fimmtudagur 15. maí

– Þessi dagur er frjáls.

– Hægt að fara á ströndina, versla, sigla o.fl.

Dagur 6

Dagsferð til Portofino skagans
Föstudagur 16. maí

–Við ferðumst með lest á Portofino skagann og tilbaka að degi loknum.

– 16 eða 25 km hlaup um helstu bæi og útsýnisstaði Portofino skaganna.

Dagur 7

Hlaup meðfram sjávarlengjunni (8-15km)
Laugardagur 17. maí

– Lest til Levanto og hlaupið til norðurs meðfram sjávarlengjunni.

– 8-15km hlaup þennan dag.

– Borða saman á veitingastað síðasta kvöldið í Monterosso.

Dagur 8

Mílanó og ferðalagið heim
Sunnudagur 18. maí

– Tékkað út af hóteli.

– Stutt lestarferð og síðan okkar rúta sem mun keyra okkur alla leið á Malpensa flugvöllin við Milano (u.þ.b. 3,5 tíma keyrsla).  Þeir sem ætla hugsanlega að lengja ferðina, verða eftir í Milano, þurfa að láta vita fyrirfram.

Umsagnir


Veit ekki hvort það sé hægt að toppa þessa ferð hún sprengdi alla hamingjuskala. Mæli svo sannarlega með þessari ferð.

Borghildur


Frábær ferð í alla staði, ótrúlega fallegar hlaupaleiðir og frábærir fararstjórar. Mæli svo sannarlega með þessari ferð.

Anna Sigríður Arnardóttir


Mögnuð ferð sem verður seint toppuð. Þvílík upplifun og fegurð. Geggjuð ferð til að njóta í geggjuðum félagsskap. Ingvar og Þóra Bríet voru frábærir fararstjórar. Vel skipulögð og ótrúlega fær að takast á við óvæntar uppákomur. Treysti þeim 100%. Myndi svooo mikið mæla með þessari ferð!

Dagmar


Þessi ferð var ólýsanlega geggjuð á allan hátt, ekki hægt að færa upplifunina í orð 🙂


Ferðin var frábær í alla staði. Fullkomnar hlaupaleiðir og frábært skipulag. Hentar fólki á öllum aldri.


Virkilega vel skipulögð ferð þar sem hugsað var fyrir öllum smáatriðum. Fararstjórarnir dekruðu við okkur á alla kanta og voru alltaf skrefi á undan þegar óvæntir hlutir komu upp. Vel haldið utan um hópinn og fyrir vikið upplifði ég afslappað frí sem bauð upp á frábærar hlaupaleiðir, dásamlegt útsýni, góðan félagsskap þar sem hægt var að njóta alls þess besta sem Ítalía býður upp á.


Einstaklega frábær ferð í alla staði, gleði, samheldni og kraftur sameinaðist þarna í allri þessari náttúrufegurð.


Ferðin var frábær í alla staði. Fullkomnar hlaupaleiðir og frábært skipulag. Hentar fólki á öllum aldri.


Frábær ferð í alla staði. Gott skipulag, einstakir fararstjórar og ferðafélagar.

Hlaupahelgi í Svíþjóð

  • Skráning er opin
  • 26.-28. sept 2025
  • Verð: 119.000 kr.
  • Verð fyrir áskrifendur: 109.000 kr.
  • Staðfestingarverð: 25.000 kr.
  • Lengd: 3 dagar
  • Erfiðleikastig: Þægilegt.
  • Hópastærð: 12-24
  • Fararstjórar: Birkir og fleiri
  • Tengiliður/nánari upplýsingar: [email protected]
Náttúruhlaup - Arctic Running ehf. 
Kennitala: 5­701­12-03­10.
VSK númer: 122691.
Skráðu þig á póstlista
Fáðu fréttir af Náttúruhlaupum.
Öll réttindi áskilin © Náttúruhlaup

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields