
Nýjar æfingaleiðir NH eru ekki sérstakir æfingahópar heldur leiðbeinandi áætlanir. Þær hjálpa þér að raða sameiginlegum æfingum NH og æfingum á eigin vegum saman í markvissa æfingaviku, hvort sem markmiðið er að byggja upp góðan grunn, bæta sig eða undirbúa sig fyrir keppnishlaup.
![]()
Esja er fyrir fólk sem er nýlega farið að hlaupa og þau sem eru að byrja aftur eftir hlé. Einföld og aðgengileg leið með 3–4 hlaupaæfingum á viku og einni aðal gæðaæfingu. Áhersla er lögð á stöðugleika og að byggja upp góðan grunn.
![]()
Hengill er fyrir vanari hlaupara sem vilja æfa markvissar, auka fjölbreytni og lengja hlaupin. Leiðin inniheldur um 4–5 hlaupaæfingar á viku, eina aðal gæðaæfingu og sveigjanleika eftir tíma og markmiðum.
![]()
Askja er keppnismiðuð æfingaleið fyrir hlaupara sem eru vanir meira hlaupamagni og vilja undirbúa sig markvisst fyrir utanvega- og fjallahlaup allt árið. Boðið er upp á stigvaxandi áætlanir með 5–7 æfingum á viku. Í Öskju verða innanhúsæfingar á braut í vetur ásamt styrktaræfingu með áherslu á þarfir hlaupara sem undirbúa sig fyrir lengri fjalla- og ofurhlaup.
Esja og Hengill fylgja almennri áskrift að Hlaupasamfélagi NH. Skráning í Öskju opnar mánudaginn 24. ágúst í Abler og er viðbótaráskrift. Askja fer formlega af stað 7. september.

"*" indicates required fields
"*" indicates required fields