Komdu í magnaða hlaupaferð með Náttúruhlaupum til Madeira 12.-19. október 2027. Madeira er græn og gróðursæl portúgölsk eyja í Atlantshafi með bröttum fjöllum, djúpum dölum og stórkostlegum hlaupaleiðum!
Á fimm hlaupadögum förum við yfir fjölbreytta stíga, um lárviðarskóga og horfum yfir Atlantshafið, hlaupum m.a. meðfram aldagömlum vatnsrásum (Levadas) og upp á Pico Ruivo, hæsta tind eyjarinnar.
Í ferðinni er gist á góðum hótelum á þremur mismunandi stöðum á eyjunni. Í Machico, Funchal og einnig tvær nætur í Porto Moniz á norðvesturströndinni. Ævintýri á hverjum í degi í stórkostlegri náttúru.
Madeira er græn og gróðursæl portúgölsk eyja í Atlantshafi með bröttum fjöllum, djúpum dölum og stórkostlegum hlaupaleiðum!
Á fimm hlaupadögum förum við yfir fjölbreytta stíga, um lárviðarskóga og horfum yfir Atlantshafið, hlaupum m.a. meðfram aldagömlum vatnsrásum (Levadas) og upp á Pico Ruivo, hæsta tind eyjarinnar. Í ferðinni er gist á þremur mismunandi stöðum, í Funchal, Machico og einnig tvær nætur í Porto Moniz á norðvesturströndinni, þar sem sjórinn flæðir inn í náttúruleg sjóböð milli hraunkletta. Lengstu dagarnir eru um 19-30 km á dag, en flesta daga verður hægt að stytta leiðirnar. Við endum ferðina með frjálsum degi í Funchal, þar sem hægt verður að slappa vel af, njóta og skoða þessa litskrúðugu borg.
Fyrir hverja er ferðin?
Ferðin hentar vönum hlaupurum sem treysta sér í að hlaupa marga daga í röð. Leiðirnar eru um 19-30 km á dag með um 1.000-1.700m hækkun. Mögulegt verður að stytta hverja dagleið um 5-10 km og því hægt að aðlaga að dagsformi. Athugið að sumir kaflar á leiðunum geta verið krefjandi fyrir lofthrædda (þröngir stígar um brattar fjallshlíðar).
Fararstjórn
Elísabet Margeirsdóttir
Elísabet hefur þjálfað og leitt ferðir hjá Náttúruhlaupaum síðan 2015. Hún hefur víðtæka reynslu af hlaupaferðum, bæði sem fararstjóri og á eigin vegum.
Þóra Bríet Pétursdóttir
Þóra Bríet er reynslumikill þjálfari og fararstjóri hjá Náttúruhlaupum. Hún er með leiðsögumannaréttindi og hefur víðtæka reynslu af leiðsögn ferða á Íslandi og erlendis.
Innifalið í verði
Gisting í 7 nætur á hótelum (2 saman í herbergi)
Fararstjórar, Elísabet Margeirsdóttir og Þóra Bríet Pétursdóttir
5 hlaupadagar, að meðaltali 5-8 tímar hvern dag, 19-29 km, 800-1700 m hækkun
Morgunmatur alla daga
Flugvallartransfer 12. og 19. október
Rútuakstur á upphafsstað hlaupa eða aftur á hótel
Flug
Varðandi flug til og frá Madeira
Ekki er beint flug til Madeira í boði fyrir þessa ferð og þátttakendur bóka flug sitt sjálfir. Þegar lágmarksfjölda er náð og ferðin hefur verið staðfest munu Náttúruhlaup kanna hentugustu flugleiðirnar og veita ráðleggingar um bókun. Akstur til og frá flugvelli er innifalinn, sem og akstur til og frá hlaupaleiðum.
Gisting
Gist verður á þremur hótelum á eyjunni. Fyrstu tvær næturnar gistum við í strandbænum Machico á suðausturströnd Madeira og næstu tvær í Funchal, höfuðborg eyjarinnar. Þaðan förum við til Porto Moniz á norðvesturströndinni, þar sem við gistum í tvær nætur. Síðustu nóttina gistum við aftur í Funchal eftir frjálsan dag í borginni.
Gert er ráð fyrir að 2 gisti saman í herbergi. Ef óskað er eftir einkaherbergi, vinsamlegast sendið póst á [email protected].
Dagskrá ferðarinnar
Með fyrirvara um breytingar. Fararstjórar velja hlaupaleiðir með tilliti til veðurs og annara aðstæðna.
Ferðadagur til Madeira. Við gistum á góðu hóteli í strandbænum Machico á austurströnd Madeira. Machico titlar sig hvorki meira né minna en höfuðborg utanvegahlaupa á Madeira.
Við hlaupum frá hótelinu í Machico upp á Pico do Facho, með útsýni yfir dalinn og skagann Ponta de São Lourenço. Frá Boca do Risco fylgjum við strandstíg hátt yfir Atlantshafinu til Caniçal áður en við lokum hringnum í Machico. Mögulegt að stytta daginn í 14km/700m.
U.þ.b. 20km / 1000 m hækkun
Hlaup: Hringur frá Porto da Cruz um Pico do Suna og lárviðarskóginn í Funduras, meðfram Atlantshafinu á Larano-stígnum. Hægt verður að stytta þessa leið í 18km/200m.
U.þ.b. 30 km / 1200 m hækkun
Hlaup: Frá Santana förum við um lárviðarskóginn í Queimadas, yfir Pico Ruivo, hæsta tind Madeira (1.862 m), og niður að sjó við Calhau de São Jorge. Hægt verður að stytta leiðina í upphafi eða lok dags eftir aðstæðum.
U.þ.b. 21 km / 1600 m hækkun
Hlaup: Við hlaupum um Levada do Norte inn í lárviðarskóginn og liggja yfir hálendið áður en við hlaupum niður að svörtu sandströndinni í Seixal. Höfuðljós er nauðsynlegt í göngunum.
U.þ.b. 22 km / 1000 m hækkun
Hlaup: Frá Chão da Ribeira förum við upp að aldagömlu lárviðartrjánum í Fanal og niður um Ribeira da Janela til Porto Moniz. Auðvelt að stytta daginn í lokinn: 16km/850m.
U.þ.b. 20 km / 1200 m hækkun
Eftir morgunverð er hópnum skutlað til Funchal, þar sem dagurinn er frjáls. Tilvalið er að rölta um gamla bæinn, skoða máluðu hurðirnar við Rua de Santa Maria og kíkja á ávaxta- og blómamarkaðinn Mercado dos Lavradores.
Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊
"*" indicates required fields
Náttúruveitan Fáðu fréttirnar fyrst
Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊