Námskeið fyrir hlaupara sem vilja þjálfa sig upp í að taka þátt í 20-30km utanvegahlaupi í skemmtilegum félagsskap og undir handleiðslu reyndra hlaupaþjálfara. Samskonar uppbygging og á Laugarvegsnámskeiðinu og gott milliskref fyrir þau sem stefna á það ári seinna.
Dagar Dagur
Klst Klst
mín Mín
seconds second
Þátttakendur undirbúa sig fyrir Fimmvörðuhálshlaupið (5VH Trail Run) 9. ágúst eða annað utanvegahlaup síðla sumars 2025.
Námskeiðið er hugsað fyrir fólk sem hefur hlaupið reglulega síðast liðið ár og vill þjálfa sig upp í að taka þátt í 20-30km utanvegahlaupi í skemmtilegum félagsskap og undir handleiðslu reyndra hlaupaþjálfara.
5VH námskeiðið er einnig góður undirbúningur fyrir önnur utanvegahlaup (20-30km) sem haldin verða seinni part sumars t.d. Dyrfjallahlaupið, Súlur Vertical, Jökulsárhlaupið, 7 tinda hlaupið o.fl.
Námskeiðið hentar hlaupurum sem hafa góðan grunn og langar að þjálfa sig upp í að geta hlaupið utanvegahlaup sem er á bilinu 20-30km. Miðað er við að námskeiðið henti flestum sem hafa hlaupið með vínrauðum á upplifunaræfingum eða hafa hlaupið 10-15km um helgar áður en námskeiðið hefst.
Æskilegt er að þátttakendur…
Til að tryggja góðan árangur er mikilvægt að stunda hlaup reglulega þangað til að námskeiðið hefst (hlaupa a.m.k. 2-3x í viku í 30-60 mínútur og taka eina lengri æfingu á viku sem er a.m.k. 60-90 mínútur). Við mælum með Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa fyrir þá sem vilja koma sér í góðan hlaupagír áður en námskeiðið hefst og hlaupa í skemmtilegum félagsskap.
Hópurinn verður hvattur til að skrá sig í ýmsar æfingakeppnir á tímabilinu sem nýtist sem góður undirbúningur fyrir lokamarkmiðið.
Námskeið fást að fullu endurgreidd ef hætt er við það a.m.k. tveimur dögum áður en það hefst. Berast þarf tilkynning þess eðlis á [email protected]. Eftir að námskeiðið hefst, er gjaldið óendurkræft.
Já, 7 klst. Klára þarf hlaupið fyrir kl. 16:00
Það eru tvær leiðir til að nálgast kvittanir og sjá áskriftir
Aðeins er hægt að ná í kvittun á PDF formi í gegnum tölvu eða vafra á síma.
Í appinu
1.Lengst niðri til hægri sjáið þið 3 láréttar línur og smellið á þær.
2.Á „Mitt svæði“ er hægt að skoða stillingar, áskriftir, kvittanir og það sem er ógreitt.
Í vafra(tölvu)
1.Farið í vafra og inn á síðuna: www.sportabler.com/shop/natturuhlaup
2.Skráið ykkur inn efst í hægra horninu. Þegar búið er að skrá sig inn er hægt að smella á reikningar og áskriftir efst í hægra horninu.
3.Hægt er að niðurhala kvittunum í PDF formi í reikningar.
Götuhlaupaskór duga í mörgum tilfellum en við mælum með því að fólk fjárfesti í náttúruhlaupaskóm (trail skór eða utanvegaskór). Náttúruhlaupaskór eru hannaðir til að veita góða vörn fyrir fæturna og grípa betur á t.d. blautum steinum, í drullu eða í lausamöl. Í slíkum tilfellum eru þeir nauðsynlegur öryggisbúnaður.
"*" indicates required fields
"*" indicates required fields