Haute Route 2024
Við kynnum nýja hlaupaferð í Valais kantónunni í Sviss. Leiðin fer um eina þekktustu gönguleið Alpanna, Haute Route (Á milli Chamonix og Zermatt).
Haute Route 2024
starts after
Hlaupaferðin
Ferðin byrjar og endar í Sion (Saillon), sem er höfuðborg Valais og einn sólríkasti staður Alpanna. Hlaupið byrjar í Isérables fyrir ofan Sion og endar í Matterhorn dalnum. Leiðin liggur í gegnum skóga og yfir há fjallaskörð sem tengja saman eina stórbrotnustu dali Alpanna. Gist verður í fjallaskálum sem flestir eru staðsettir á fallegum útsýnisstöðum. Leiðin er vinsæl á meðal reyndra fjallahlaupara en er ekki eins umsetin og Tour du Mt. Blanc þar sem Haute Route er meira krefjandi og liggur hærra.
Hlaupaleiðin sem verður farin á sex dögum er samtals um 120 km löng og
samanlögð hækkun er um 8500 metrar.
Þetta er ferð fyrir vana utanvega- og
fjallahlaupara og er kostur að hafa reynslu af sambærilegum ferðum t.d. Tour du Mt.
Blanc eða Tour Monte Rosa.
Fyrir hverja er ferðin?
Ferðin hentar hlaupurum sem hafa mikla reynslu af lengri hlaupum og einnig vana fjallahlaupara. Mikill kostur að hafa farið í sambærilega hlaupaferð þar sem dagleiðir eru allt að 20-25km. Ferðin er einnig tilvalin æfingaferð fyrir þau sem stefna á lengrifjallahlaup t.d. UTMB og WTM hlaupin o.fl. Frábært tækifæri til að þjálfa sig í að fara upp og niður langar brekkur í háfjallalofti.
Fyrirkomulag ferðarinnar er með öðru sniði en í Tour Mt. Blanc ferðunum. Hópurinn
gistir í skálum á leiðinni sem standa oft hátt í fjallshlíðum. Því þarf að ferðast með
sama létta búnaðinn allan tímann í góðum hlaupabakpoka. Ferðin er sniðin fyrir þau
sem vilja njóta fjallalofts og -fegurðar í heila viku og á sama tíma takast á við
eftirminnilega áskorun.
Fararstjórn
Hópurinn mun njóta leiðsagnar Katrínar Sigrúnar Tómasdóttur. Kata býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á leiðsögn, hlaupa- og alpaferðum. Hlutverk fararstjórans er að tryggja öryggi þátttakenda og góða upplifun frá upphafi til enda.
Innifalið í verði:
- Fararstjórn
- Gisting í góðum fjallaskálum og gistiheimilum (5 nætur)
og á 4*hótel fyrstu og síðustu nóttina. - Morgunverður alla daga og 5x kvöldverðir.
- Samgöngur á degi 2, 4 og 7.
- Undirbúningsfundur og sameiginleg æfing fyrir ferð.
Ekki innifalið í verði:
- Flug
- Lestarferð/akstur frá flugvelli til og frá Sion (Saillon).
- Kvöldverður á degi 1, og 7.
- Hádegissnarl og drykkir. Fararstjóri bókar hádegisverði í skálum/bæjum
og skipuleggur nestisstopp eftir aðstæðum og þörfum hópsins.