5VH námskeið
NÝTT HLAUPANÁMSKEIÐ!
Námskeið fyrir hlaupara sem vilja þjálfa sig upp í að taka þátt í 20-30km utanvegahlaupi í skemmtilegum félagsskap og undir handleiðslu reyndra hlaupaþjálfara.
5VH námskeið
starts after
5VH námskeið
Þátttakendur undirbúa sig fyrir Fimmvörðuhálshlaupið (5VH Trail Run) 12. ágúst eða annað utanvegahlaup síðla sumars 2023.
Námskeiðið er hugsað fyrir fólk sem hefur hlaupið reglulega síðast liðið ár og vill þjálfa sig upp í að taka þátt í 20-30km utanvegahlaupi í skemmtilegum félagsskap og undir handleiðslu reyndra hlaupaþjálfara.
Skráning í Fimmvörðuhálshlaup Náttúruhlaupa (5VH Trail Run) opnar fljótlega.
5VH námskeiðið er einnig góður undirbúningur fyrir önnur utanvegahlaup (20-30km) sem haldin verða seinni part sumars t.d. Dyrfjallahlaupið, Súlur Vertical, Jökulsárhlaupið, 7 tinda hlaupið o.fl.


Fyrirkomulag námskeiðsins
- Tvær sameiginlegar æfingar á viku: Á fimmtudögum kl. 17:30 og sunnudögum kl. 9:00.
- Staðsetning og nánari upplýsingar um allar æfingar verða aðgengilegar í gegnum Sportabler appið.
- Æfingaáætlun eftir getu. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hlaupi nokkrum sinnum í viku á eigin vegum skv. æfingaáætlun.
- Tveir fræðslufundir verða haldnir í tengslum við utanvegahlaup.
- Þátttakendur fá 15% afslátt af 5VH Trail Run.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið hentar hlaupurum sem hafa góðan grunn og langar að þjálfa sig upp í að geta hlaupið utanvegahlaup sem er á bilinu 20-30km. Miðað er við að námskeiðið henti flestum sem hafa hlaupið með vínrauðum á upplifunaræfingum eða hafa hlaupið 10-15km um helgar áður en námskeiðið hefst.
Æskilegt er að þátttakendur…
- hafi hlaupið reglulega síðast liðið ár
- séu vanir að hlaupa 10-15km um helgar áður en námskeiðið hefst
- séu tilbúnir að fylgja markvissri æfingaáætlun og takast á við skemmtilega hlaupaáskorun

Til að tryggja góðan árangur er mikilvægt að stunda hlaup reglulega þangað til að námskeiðið hefst (hlaupa a.m.k. 2-3x í viku í 30-60 mínútur og taka eina lengri æfingu á viku sem er a.m.k. 60-90 mínútur). Við mælum með Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa fyrir þá sem vilja koma sér í góðan hlaupagír áður en námskeiðið hefst og hlaupa í skemmtilegum félagsskap.
Hópurinn verður hvattur til að skrá sig í ýmsar æfingakeppnir á tímabilinu sem nýtist sem góður undirbúningur fyrir lokamarkmiðið.
Innifalið í námskeiðinu:
- Eitt langt upplifunarhlaup í getuskiptum hópum á viku.
- Ein sameiginleg gæðaæfing á viku.
- Lokaður Facebook hópur fyrir upplýsingar og samskipti (notum Sportabler til að miðla upplýsingum um sameiginlegar æfingar).
- Fjölbreyttar og spennandi hlaupaleiðir allt tímabilið.
- Æfingaplan eftir getu
- Tvö fræðslukvöld
5VH námskeið (14 vikur): 54.900 kr.
Verð fyrir áskrifendur Náttúruhlaupa: 44.900 kr.
Umsjón og þjálfun
Tímasetning æfinga

Ertu að stefna á ultra hlaup?
Náttúruhlaup bjóða upp á Ultra námskeið sem verður starfandi frá febrúar og út júní 2023. Þátttakendum á Ultra námskeiðinu fá faglega leiðsögn og þjálfun fyrir þátttöku í löngum ofurhlaupum (50km+).
Q&A
Yes, 7 hours. The race must be finished before 16:00.
Það eru tvær leiðir til að nálgast kvittanir og sjá áskriftir.
Í SPORTABLER APPINU:
1. Lengst niðri til hægri sjáið þið 3 láréttar línur og smellið á þær.
2.Á „Mitt svæði“ er hægt að skoða stillingar, áskriftir, kvittanir og það sem er ógreitt.
Í VAFRA (TÖLVU):
1.Farið í vafra og inn á síðuna sem þið keyptuð námskeiðið: www.sportabler.com/shop/natturuhlaup
2.Skráið ykkur inn efst í hægra horninu. Þegar búið er að skrá sig inn er hægt að smella á reikningar og áskriftir efst í hægra horninu.
3.Hægt er að niðurhala kvittunum í PDF formi í reikningar.
Street running shoes are sufficient in many cases, but we recommend that people invest in natural running shoes (trail shoes or off-road shoes). Nature running shoes are designed to provide good protection for the feet and grip better on e.g. wet stones, mud or loose gravel. In such cases, they are essential safety equipment.