grunnnámskeið
Grunn-hlaupanámskeið
Næsta hlaupa námskeið hefst í febrúar apríl 2021
- Uppselt er í námskeiðið sem hefst í febrúar.
- Fjögurra vikna grunnnámskeið hefst:
- fimmtudaginn 8. apríl kl. 17:30 (rauður hópur)
- laugardaginn 10. apríl kl. 10:00 (gulur hópur)
- sunnudaginn 11. apríl kl. 10:00 (rauður hópur)
- Ef febrúar námskeiðið hentar betur má skrá sig á biðlista hér.
Rauðu hóparnar hlaupa svo saman (gæðaæfing) á þriðjudögum kl. 17:30. Gæðaæfing gula hópsins verður á fimmtudögum kl. 17:30 (tvær sameiginlegar æfingar í viku fyrir alla hópa.) Síðsta æfingin verður þriðjudaginn 4. maí og fimmtudaginn 6. maí.
Verð: 21.900 kr.
Athugið að fullt tillit verður tekið til aðtæðna í þjóðfélaginu vegna Covid-19 faraldurins. Ef ekki verður hægt að hefja námskeiðið á settum tíma, mun því seinka þar til aðstæður leyfa. Henti sú tímasetning ekki, verður hægt að fá fulla endurgreiðslu.
Upplýsingar og skráning neðar á síðunni.
Prófaðu nýjan lífsstíl með okkur!
Námskeið í Náttúruhlaupum eru einstök að því leyti að hlaupnar eru mismunandi leiðir í íslenskri náttúru á höfuðborgarsvæðinu eða í jöðrum þess. Við leggjum áherslu á að fólk læri að njóta þess að hlaupa í fallegri náttúru. Til að gera hlaup að lífsstíl, þarf að hafa gaman af þeim!
Fyrirkomulag
Sameiginleg náttúruhlaup eru tvisvar í viku: upplifunarhlaup og gæðaæfingar.
Upplifunarhlaup
Einu sinni í viku eru farnar mismunandi leiðir og lögð áhersla á að njóta þess að skokka í fallegri náttúrú. Fólk þarf sjálft að koma sér á staðinn. Reikna má með að æfingin sjálf taki 1-2 klst en með akstri til og frá staðnum 2-3 klst. Flestir hópar eru með upplifunarhlaupin á sunnudagsmorgnum en sumir á laugardagsmorgnum eða á virkum degi kl. 17:30.
Gæðaæfingar
Á virkum degi á milli 17:30 og 18:30 eru gæðaæfingar. Þá hittast allir hópar saman undir leiðsögn eins þjálfara. Þær fara alltaf fram á sama stað (miðsvæðis). Hér eru ekki kannaðar nýjar leiðir en lögð áhersla á hlaupaþjálfunina. Æfingin sjálf er alltaf 1 klst.
Hvar?
Mismunandi er hvar við hittumst á upplifunaræfingum en tilkynnt verður með tölvupósti og á lokaðri Facebook grúppu hvar æfingin verður í hvert skipti. Hver þátttakandi ber sjálfur ábyrgð á að koma sér á staðinn og heim en það er um að gera að nota Facebook grúppuna til að sameinast í bíla. Reikna má með að hvert skipti taki 2-3 klst. með öllu en það fer eftir því hvaða leið er valin og hve langt þarf að keyra á staðinn. Gæðaæfingarnar eru alltaf á sama stað, missvæðis.
Fyrir hverja?
Námskeiðin henta bæði algjörum byrjendum í hlaupum (guli hópurinn) og þeim sem hafa eitthvað fiktað við hlaup en vilja komast almennilega í gang og hlaupurum sem eru vanir götuhlaupum og vilja kynnast náttúruhlaupum (rauði hópurinn).
Fyrir fólk sem hefur áður tekið þátt í námskeiði hjá okkur, bendum við á hlaupasamfélagið þar sem allir ættu að finna hóp sem hentar. Vanir hlauparar, sem hafa ekki áður tekið þátt í námskeiði en hafa mikla reynslu af hlaupum í náttúrunni, geta líka farið beint í hlaupasamfélagið ef þeir svo kjósa.
Við mælum ekki með að reynslulitlir hlauparar eða hlauparar sem hafa ekki reynslu af hlaupum í náttúrunni fari beint í hlaupasamfélagið. Best er að fara fyrst á námskeið þar sem utanumhald og fræðsla er meiri.
Hópar
Guli hópurinn er fyrir byrjendur sem hafa aldrei hlaupið en vilja læra það í fallegu umhverfi undir leiðsögn fagaðila. Það verður gengið og hlaupið til skiptis. Viðmiðunarmarkmið er að hlaupa stanslaust í hálftíma án vandræða í lok námskeiðsins (sumir ná því markmiði, aðrir ekki sem er allt í lagi!). Einnig fyrir þátttakendur sem hafa áður hlaupið með gula hópnum og vilja gera það áfram (þó flestir sem hafa verið áður ættu að geta farið í appelsínugula hópinn í hlaupasamfélaginu).
Rauði hópurinn er fyrir fólk sem hefur eitthvað hlaupið en vill komast almennilega í gang undir leiðsöng fagaðila. Viðmiðunarmarkmið er að byggja upp þol og koma líkamanum í form til þess að hlaupa stanslaust í klukkutíma án vandræða eða meiðsla í lok námskeiðs. Yfirleitt er farið 6-10 km. Þessi hópur er hugsaður fyrir fólk sem ekki hefur verið áður á námskeiði hjá okkur.
Verð
- Námskeiðin eru 4 vikur og fara fram a.m.k. þrisvar á ári, að vetri, vori og hausti.
- Verð: 21.900 fyrir fjögurra vikna námskeið
Bendum ykkur á að fylgjast með fréttum af Náttúruhlaupum með því að skrá ykkur á póstlistann okkar. Þannig fáið þið fréttirnar af því hvenær skráningar opna, nýjar ferðir koma út og aðra viðburði um leið.
Næsta námskeið hefst í janúar. Skráið ykkur á póstlista okkar til að fá fyrst að vita hvenær opnar fyrir skráningu.
Skráning fer fram hér. Með því að smella á skráningarhnappinn, opnast skráningarsíða Náttúruhlaupa á Nóra. Þar þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum, stofna sig sem forráðamann (hafi það ekki þegar verið gert) og síðan stofna sig sem iðkanda. Síðan smella á iðkanda og þá er hægt að sjá hvaða námskeið eru í boði og skrá sig.