Gist verður allan tímann á fjögurra stjörnu hóteli með sundlaug í Taormina og er morgunmatur innifalinn. Taormina er þekktur fyrir fallegar strendur, miðaldabyggingar og einstakt útsýni yfir eldfjallið Etnu og yfir strandlengjuna, enda er bærinn staðsettur í um 200 metrum yfir sjávarmáli.
Hótelið er mjög vel staðsett nálægt miðbæ Taormina og stutt er niður að strönd með kláf eða fótgangandi. Áhugaverðir staðir í Taormina eru m.a. gríska hringleikahúsið (Teatro Greco), Isola Bella og Piazza IX Aprile.
Gert er ráð fyrir að 2 gisti saman í herbergi. Ef óskað er eftir einkaherbergi, vinsamlegast sendið póst á
[email protected].