Laugavegurinn 2026

Klassískt ævintýri! Frábær leið til að njóta þessa magnaða landsvæðis.

Bæði fyrir fólk sem dreymir um að taka þátt í Laugavegs keppninni og aðra sem vilja njóta þess að hlaupa þessa stórkostlegu leið á tveim dögum.

  • 10.- 11. ágúst 2026
  • Skráning er opin
  • Verð: 149.000 kr.
  • Lengd: 2 dagar
  • Erfiðleikastig: Nokkuð erfitt
  • Hópastærð: 11 hámarksfjöldi, 6 lágmarksfjöldi )
  • Verð fyrir áskrifendur: 139.000 kr.
00

Dagar Dagur

00

Klst Klst

00

mín Mín

Hlauptu Laugaveginn á tveim dögum!

Landmannalaugar-Hrafntinnusker eru 10 km og mesta hækkunin 500 m. Í Hrafntinnuskeri er stutt stopp, hægt að komast á þurrsalerni og fylla á vatnsbrúsa. Hrafntinnusker-Álftavatn er 12 km leið; í Álftavatni er ekki stoppað en möguleiki á salernisstoppi og fylla á vatnsbrúsa.

Álftavatn-Hvanngil er 5 km leið og þar er kærkomið vað sem kælir kálfana. Annan daginn er hlaupið aðra 27 km frá Hvanngili að Volcano Huts í Húsadal. Stuttu eftir Hvanngil þverum við Bláfjallakvísl, því næst njótum við Sandanna og stoppum stutt í Emstrum. Þar eru vatnssalerni og hægt að fylla á vatnsbrúsana. Þegar komið er 13 km frá Emstrum liggur leiðin meðfram Markarfljótsgljúfri og skömmu fyrir Þórsmörk þverum við Þröngá, þá taka á móti okkur skógarnir og við endum í Húsadal í Þórsmörk.

Fyrir hverja

Fyrir alla sem treysta sér að skokka u.þ.b. 27 km tvo daga í röð. Ekki er gerð krafa um hraða og hægt verður að fara á mismunandi hraða eftir getu. Mikið stoppað og notið á leiðinni. 
 

Fararstjórn

Katrín Lilja og Rósa munu sjá um ferðina en einnig verður Birkir með í för.

Katrín Lilja og Rósa hafa báðar þjálfað lengi hjá Náttúruhlaupum og séð um vinsælar æfingar í Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa. 

Innifalið í verði:

Ferðir fram og til baka með rútu

Gisting í Hvanngili (kojur með dýnum, nauðsynlegt að koma með svefnpoka).

Trúss fyrir farangur

Matur (kvöldmatur á degi 1., morgunmatur og hádegisnesti á degi 2).

Leiðsögn tveggja þjálfara Náttúruhlaupa.

Sturta/gufa/klósettaðstaða í Volcano Huts

Ekki innifalið í verði:

Svefnpoki og koddi

Hádegismatur/hlaupanesti á degi 1

Kvöldmatur á degi 2 (má kaupa í sjoppu á Hvolsvelli)

Hvað er innifalið?

Ferðir fram og til baka með rútu

Gisting í Hvanngili (kojur með dýnum, nauðsynlegt að koma með svefnpoka).

Trúss fyrir farangur

Matur (kvöldmatur á degi 1., morgunmatur og hádeigisnesti á degi 2).

Leiðsögn tveggja leiðsögumanna Náttúruhlaupa.

Sturta/gufa/klósettaðstaða í Volcano Huts

Hvað er ekki innifalið?

Svefnpoki og koddi

Hádegismatur/hlaupanesti á degi 1

Kvöldmatur á degi 2 (má kaupa í sjoppu á Hvolsvelli)

Afbókunarreglur ferða

Berast þarf skrifleg beiðni um afbókun. Mælst er til að notað sé netfangið [email protected] vegna ferða og [email protected] vegna námskeiða.

Næturferðir

Náttúruhlaup heldur staðfestingargjaldinu, sem er yfirleitt um 25% af verðinu og er það óendurkræft eftir að viðkomandi ferð er staðfest.

Náttúrhlaup heldur 50% af heildarverði ef 30 dagar eða skemur er í ferðina við afbókun.

Náttúruhlaup heldur 100% af heildarverði ef 15 dagar eða skemur er í ferðina við afbókun.

Afbókunarreglur ferða

Berast þarf skrifleg beiðni um afbókun. Mælst er til að notað sé netfangið [email protected] vegna ferða og [email protected] vegna námskeiða.

Næturferðir

  • Náttúruhlaup heldur staðfestingargjaldinu, sem er yfirleitt um 25% af verðinu og er það óendurkræft eftir að viðkomandi ferð er staðfest.
  • Náttúrhlaup heldur 50% af heildarverði ef 30 dagar eða skemur er í ferðina við afbókun.
  • Náttúruhlaup heldur 100% af heildarverði ef 15 dagar eða skemur er í ferðina við afbókun.

Dagsferðir

Ef um dagsferð er að ræða, fæst 100% endurgreitt ef meira en tveir dagar eru í ferðina.

Tab Content

This is a basic text element.

Dagskrá ferðarinnar

Dagur 1

Mánudagur 10. ágúst

– Við mætum kl. 07:45 hjá Húsgagnahöllinni Bíldshöfða. Okkar rúta leggur af stað kl. 08:00 í Landmannalaugar.

– Þegar þangað er komið, borðum við hádegismat í skálanum okkar eftir að hafa komið okkur vel fyrir.

– Hlaupið um Hrafntinnusker og Álftavatn. Vegalengd: 27 km.

– Við komuna í Hvanngil bíða töskurnar okkar og við getum farið í sturtu. Síðan elda leiðsögumennirnir góðan mat og við gistum öll í skálanum að Hvanngili. Áður en við förum að sofa förum við yfir dagskrá næsta dags.

Dagur 2

Þriðjudagur 11. ágúst

– Sameiginlegur morgunmatur og kaffi. Fólk smyr sér nesti og tekur með í bakpokum sínum. Upphitun og förum yfir hvernig við þverum ár.

– Við förum 27 km leið inn í Húsadal. Þar bíða okkar töskurnar og við förum í sturtu og gufu. Þeir sem vilja geta fengið sér bjór eða aðra hressingu í Volcano Huts (ekki innifalið).

– Brottför frá Volcano Huts 17:00. Stoppað í sjoppu á Hvollsvelli þar sem hægt er að kaupa sér léttan kvöldmat.

Afbókunarskilmálar

  • Náttúruhlaup heldur staðfestingargjaldinu, sem er yfirleitt um 25% af verðinu og er það óendurkræft.
  • Náttúrhlaup heldur 50% af heildarverði ef 30 dagar eða skemur er í ferðina við afbókun.
  • Náttúruhlaup heldur 100% af heildarverði ef 15 dagar eða skemur er í ferðina við afbókun.
  • Ef lágmarksfjöldi næst ekki 8 vikum fyrir brottför, áskilum við okkur rétt til að fella niður ferðina og endurgreiða.

Laugavegurinn 2026

  • Skráning er lokuð
  • 10.- 11. ágúst 2026
  • Verð: 149.900 kr.
  • Verð fyrir áskrifendur: 139.900 kr.
  • Lengd: 2 dagar
  • Erfiðleikastig: Nokkuð erfitt
  • Hópastærð: 11 (hámark)
  • Fararstjórar: Katrín Lilja og Rósa.
  • Tengiliður/nánari upplýsingar: [email protected]
Náttúruhlaup - Arctic Running ehf. 
Kennitala: 5­701­12-03­10.
VSK númer: 122691.
Skráðu þig á póstlista
Fáðu fréttir af Náttúruhlaupum.
Öll réttindi áskilin © Náttúruhlaup

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields