Bakgarður 101 er systurkeppni Bakgarðs Náttúruhlaupa sem fer fram í Heiðmörk í september ár hvert. Næsta keppni fer fram í Öskjuhlíð, frá Mjölnisheimilinu, 1. maí 2027.
Dagar Dagur
Klst Klst
mín Mín
seconds second
Keppnin verður haldin í sjötta sinn þann 1. maí 2027. Keppnin hefst við Mjölnisheimilið í Öskjuhlíð og fer leiðin um skemmtilega stíga Öskjuhlíðar og góða göngustíga meðfram henni og Nauthólsvík (um 60% malar- og náttúrustígar og 40% malbik).

Keppnin verður með hefðbundnu sniði bakgarðshlaupa og fer eftir ákveðinni uppsetningu og reglum (Reglur). Hlaupinn er rúmlega 6,7km hringur á hverjum klukkutíma. Sá sem hleypur flesta hringi er sá eini sem klárar hlaupið og stendur uppi sem sigurvegari. Til að klára hlaupið verður viðkomandi að klára síðasta hringinn einn. Hver hringur byrjar alltaf á heila tímanum og er mikilvægt að keppendur séu komnir í ráshólfið og hlaupi af stað þegar bjallan hringir á heila tímanum. Hlauparar sem eru ekki komnir í ráshólfið á heila tímanum þegar hringur er ræstur eru dæmdir úr keppni. Eftir hvern hring má nota tímann sem er eftir af klukkutímanum til að hvílast og undirbúa sig fyrir næsta hring. Heildarvegalengd hlaupara sem klárar 24 hringi (24 klukkutímar) er 100 mílur (160,8km).
Hér má sjá leiðina.
Bakgarður 101 2028 verður silfurhlaup og fær sigurvegarinn silfurmiða í landslið Íslands sem keppir í landsliðakeppninni í október 2028. Keppnin er þó tækifæri fyrir öll til að ná sem lengst og geta komist í íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum ef þau hlaupa nægilega langt.
Keppendur sem ljúka að minnsta kosti 15 hringjum geta sótt um að gerast félagar í Félagi 100km hlaupara á Íslandi (www.100km.is)

Götuhlaupaskór duga í mörgum tilfellum en við mælum með því að fólk fjárfesti í náttúruhlaupaskóm (trail skór eða utanvegaskór). Náttúruhlaupaskór eru hannaðir til að veita góða vörn fyrir fæturna og grípa betur á t.d. blautum steinum, í drullu eða í lausamöl. Í slíkum tilfellum eru þeir nauðsynlegur öryggisbúnaður.

"*" indicates required fields
"*" indicates required fields