Náttúruhlaup bjóða upp á spennandi hlaupaferð í Dólómítana.
Dólómítafjöllin eru sannkölluð útivistarparadís og þar er hægt að hlaupa ótal leiðir á milli fjallaskála í mögnuðu umhverfi. Í þessari ferð verður meðal annars hlaupið um svæði sem eru á heimsminjaskrá UNESCO, til dæmis Tre Cimes og Cinque Torri. Þetta svæði Ítalíu er einnig þekkt fyrir sögu sína frá fyrri heimstyrjöldinni og er gaman að kynna sér hana.

Fyrir hverja er ferðin?
Ferðin er miðlungskrefjandi og þarf fólk að vera í góðri þjálfun til að þola að vera lengi á fótum nokkra daga í röð. Í ferðinni eru fjórir hlaupadagar og einn frjáls dagur. Hlaupaleiðirnar eru frá 10-20km með allt að 1.100m hækkun.
Þau sem það kjósa geta sleppt hlaupadegi og notið þess sem Cortina d´Ampezzo hefur upp á að bjóða. Eins verður einn frjáls dagur sem fólki gefst kostur á að verja að vild, m.a. er hægt að leigja sér hjól eða fara í göngutúr á eigin vegum. Hópurinn hittist á flugvellinum í München á degi eitt og er akstur innifalinn til og frá Cortina d’Ampezzo.
Fararstjórn
Leiðsögumenn eru þær Helga María Heiðarsdóttir og Kristjana Milla Snorradóttir. Þær eru báðar reynslumiklir þjálfarar hjá Náttúruhlaupum og hafa þjálfað á ótal námskeiðum og í Hlaupasamfélagi NH. Helga María er einnig lærður fararstjóri með víðtæka reynslu sem slíkur. Þær hafa báðar verið fararstjórar í ferðinni áður. Það má lofa því að það er aldrei leiðinlegt í kringum Millu og Helgu Maríu!
Fararstjórar
Innifalið í verði
Gisting með morgunmat á fallegu 3 stjörnu hóteli
Sameiginlegur lokakvöldverður
Akstur til og frá flugvelli og á hlaupastaði
Fararstjórn
Aðgangur í kláfa
Undirbúningfundur með fararstjórum
Flug
Máltíðir sem ekki eru taldar upp
Afþreying á hvíldardegi
Önnur þjónusta sem ekki er tekin fram
Gisting
Gist verður á þriggja stjörnu hóteli í Cortina d’Ampezzo allar næturnar og er morgunmatur innifalinn. Útsýnið þarna er alveg ótrúlegt og um ógleymanlega ævintýraferð að ræða. Gestir geta nýtt sér heilsulind með heitum potti, finnsku gufubaði og tyrknesku baði. Þetta er fullkominn staður til að slaka á eftir góðan dag í fjalllendinu.
Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊
"*" indicates required fields
Náttúruveitan Fáðu fréttirnar fyrst
Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊