Keppnishlaup

Backyard Ultra World Team Championships

Í október 2026 fer fram Heimsmeistaramót landsliða í bakgarðshlaupum. Með tilkomu Bakgarðshlaupa Náttúruhlaupa hefur Ísland unnið sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramótinu og veitt hlaupurum hér á landi tækifæri til að komast í íslenska landsliðið.

Dagsetningar

18.10.2026

Staða

Verð

Hlaupaleið

Dagsetningar
18.10.2026
Verð

Heimsmeistaramót landsliða í bakgarðshlaupum 2026

Fleiri en 60 lönd taka þátt í keppninni í ár (samanborið við 38 lönd árið 2022). Hvert land hleypur á eigin landsvæði og hefst keppnin á nákvæmlega sama tíma um allan heim.

Hlaupið hefst kl. 12:00 á íslenskum tíma. Markmið íslenska liðsins er að ná sem flestum samanlögðum fjölda hringa á meðan keppnin stendur yfir.

Keppnisnúmer hvers hlaupara fer eftir árangri. Númerið vísar fyrst og fremst til fjölda hringa (jarda) sem lokið er í keppninni, ásamt liðsstigi keppandans (1–15), en hlauparar keppast einnig um að sigra í sínum númeraflokki.

Keppninni á Íslandi lýkur þegar aðeins einn keppandi í íslenska liðinu er eftir og lýkur einum hring einn sína liðs (sigurvegarinn). Sigurvegari íslensku keppninnar tryggir sér þátttökurétt á Heimsmeistaramóti einstaklinga í bakgarðshlaupum 2027.

Keppnisstaðurinn á Íslandi verður í Elliðaárdal og hefst hringurinn við Elliðaárstöð Orkuveitu Reykjavíkur. Keppendur og starfsfólk mun hafa aðstöðu í byggingum Orkuveitu Reykjavíkur og er Elliðaárstöðin og svæðið í kring tilvalið fyrir áhorfendur til að koma og fylgjast með keppendum leggja af stað í hvern hring eða sjá þau koma í mark.

Hlaupabrautin er eins og í öllum viðurkenndum bakgarðshlaupum 6,706 km löng og fer um frábæra stíga í og við hólmann. Brautin inniheldur litla hækkun og er að mestu um náttúrustíga.

Vakin er athygli á því að skv. reglum keppninnar er stranglega bannað að hlaupa með keppendum í brautinni eða aðstoða (t.d. rétta hluti) á meðan þau eru enn að hlaupa hringinn.

Keppendur

Liðið er skipað 15 hlaupurum sem tryggðu sér sæti í liðinu út frá árangri í bakgarðskeppnum á tímabilinu ágúst 2024-ágúst 2026.

Verð

Skráðu þig fyrir 1. janúar og tryggðu þér hagstæðasta verðið!
19.900 kr.
Til 31. desember
Bolur valkvæður (ekki innifalinn)
22.900 kr.
Frá 1.janúar til 30. júní
Bolur valkvæður (ekki innifalinn)
23.900 kr.
Eftir 30. júní
Bolur fæst ekki

Ársáskrifendur í hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa, Náttúrugöngu og NH vinum fá afsláttarkóða sem gefur 15% afslátt sem gildir tvö fyrri tímabilin (til 30. júní). Enginn afsláttur er veittur eftir 30. júní. Ekki er hægt að fá afsláttinn eftir á hafi viðkomandi greitt fullt verð án þess að nýta kóðann.

Endurgreiðsla fæst ekki en hægt er að gera nafnabreytingar til og með 31. júlí á www.netskraning.is. Náttúruhlaup eru ekki milliliður á endursölu á miðum og nýr eigandi fær ekki aðra stærð á bol ef upphaflegi eigandi pantaði bol. Verð og fyrirkomulag á endursölu er algjörlega á milli seljanda og kaupanda. Varist að framkvæma nafnabreytinguna fyrr en búið er að greiða til kom í veg fyrir að svindlað sé á ykkur. 

Keppnisleiðin

Hér má sjá leiðina. Með því að smella á flugvélina á myndinni til hliðar, er betur hægt að átta sig á landslaginu, hækkanir og lækkanir á leiðinni.
Fylgist með keppninni á Facebook-síðu Bakgarðshlaupa Náttúruhlaupa!

Reglur hlaupsins

Aldurstakmark og skilyrði fyrir þátttöku í 5VH Trail Run er 18 ára í samræmi við leiðbeiningar FRÍ um framkvæmd utanvegahlaupa.

Keppnisstjórum er heimilt að aflýsa eða stoppa hlaupið vegna utanaðkomandi aðstæðna.

Keppendur skuldbinda sig til að:

Stunda viðeigandi þjálfun til að ljúka keppni innan tímamarka.

Klára þarf keppnina á innan við 7 klst. Tímamörk hjá Baldvinsskála eru 3 klst og hjá Strákagili 6 klst. 

Stunda heiðarlega keppni og fylgja settri leið skipuleggjenda.

Bera virðingu fyrir náttúrunni og henda engu rusli á leiðinni nema við drykkjarstöðvar.

Klæða sig eftir veðri og veðurspá. Hafið í huga að veður getur verið allt öðruvísi upp á jöklinum en í upphafi hlaupsins.

Hafa með sér nægja næringu og vökva til að klára keppni.

Sýna öðrum keppendum og göngufólki tillitsemi á leiðinni.

Hafa keppnisnúmer sýnilegt allan tímann.

Keppendum ber að aðstoða aðra keppendur í neyð þar til önnur viðeigandi hjálp berst.

Keppnisstjóri ber ekki ábyrgð á hlaupurum vegna utanaðkomandi áhrifa eins og veðurs og náttúruhamfara.

Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni en eru hvattir til að leita viðeigandi aðstoðar ef um slys eða veikindi er að ræða. Björgunarsveitafólk verður til staðar á drykkjarstöðvum og læknir í markinu.

Keppnisstjóri getur vísað öllum frá keppni sem fylgja ekki settum reglum.

Hlaðinn sími

Bakpoki/hlaupavesti

Álteppi (fæst ódýrt í flestum apótekum)

Flauta (fylgir með mörgum hlaupavestum)

Léttur skel jakki. Ef rigningarspá þarf hann að hafa hettu og þola minnst 10.000 mm.

Húfa/buff, vettlingar

A.m.k. 1 L af vökva

Einhver næring (dæmi: gel, súkkulaði. Gott að nota það sem hefur reynst vel á æfingum)

Utanvegahlaupaskór (trail skór)

Ef rigningaspá þarf skelbuxur sem þola minnst 10.000 mm.

Glacier

Búnaður sem mælt er með

Auka fatnaður (t.d. þunn peysa, skelbuxur)

Sólgleraugu

Sólarvörn

Aukabatterí fyrir símann

112 Where ARE U appið

Taska með handklæði, þurrum fötum og skóm til að fara í eftir keppnina. Regnföt og hlý föt eftir veðurspá þar sem bíða þarf í Volcano Huts þar til rútan fer. Öllum þátttakendum býðst að láta trússa slíka tösku frá starti (Skógum) að marki (Volcano Huts).

Öryggi

Öryggi er á ábyrgð þátttakenda. Skipuleggjendur munu gera eftirfarandi til að lágmarka hættu

Leiðin verður vel merkt

Björgunarsveitin Dagrenning sér um drykkjarstöðvar við Baldvinsskála og í Strákagili. Þeir verða með sjúkrabörur og tæki til að nálgast fólk í neyðartilfellum.

Brautarverðir verða við Kattarhryggi og í Langadal.

Læknir og hjúkrunarfræðingur verða í markinu.

Fimmvörðuháls

Ferðir í boði

Hringferð: Reykjavík > Skógar og Volcano Huts > Reykjavík – 14.000 kr. (bara keppendur)

Skógar > Volcano Huts – 6.000 kr. (fyrir aðstandendur sem vilja fá far í markið kl. 09:15)

Volcano Huts > Skógar – 9.000 kr. (keppendur og/eða aðstandendur)

Spurningar og svör

Já, 7 klst. Klára þarf hlaupið fyrir kl. 16:00

Í raun er það einstaklingsbundið þó flestum finnist bakpokarnir þægilegri auk þess sem þeir eru plássmeiri. Svona heilt yfir þá er í styttri hlaupum í góðu veðri nóg að vera með hlaupabelti en í vetrarhlaupum er gott að hafa hlaupabakpoka og geyma þá auka húfu og vettlinga ásamt einhverri orku í pokanum.

Götuhlaupaskór duga í mörgum tilfellum en við mælum með því að fólk fjárfesti í náttúruhlaupaskóm (trail skór eða utanvegaskór). Náttúruhlaupaskór eru hannaðir til að veita góða vörn fyrir fæturna og grípa betur á t.d. blautum steinum, í drullu eða í lausamöl. Í slíkum tilfellum eru þeir nauðsynlegur öryggisbúnaður.

Upplysingar

Backyard Ultra World Team Championships

Dagsetningar
18.10.2026

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields