Keppnishlaup

Bakgarður Heiðmörk

Allir geta tekið þátt í Bakgarðshlaupinu. Þú þarft aðeins að treysta þér til að fara 6,7 km á einum klukkutíma. Hversu oft þú gerir það er undir þér komið!

Dagsetningar

19.09.2026

Staða

Skráning hefst 1. júní kl. 12:00

Verð

15.900 kr.

Lengd

6,7km

Hlaupaleið

Dagsetningar
19.09.2026
Verð
15.900 kr.

Bakgarður Heiðmörk
Iceland Backyard Ultra

Verður haldinn laugardaginn 19. september 2026.

Best er að gerast áskrifandi að póstlistanum okkar til að fá tilkynningu um leið og skráning hefst. Einnig má fylgjast með á FB-hópi keppninnar.

Keppnin verður hefðbundið bakgarðshlaup og fer eftir ákveðinni uppsetningu og reglum (https://backyardultra.com/rules/).

Hvernig virkar Bakgarður?

Keppnin verður með hefðbundnu sniði bakgarðshlaupa og fer eftir ákveðinni uppsetningu og reglum. Hlaupinn er rúmlega 6,7km hringur á hverjum klukkutíma. Sá sem hleypur flesta hringi er sá eini sem klárar hlaupið og stendur uppi sem sigurvegari. Til að klára hlaupið verður viðkomandi að klára síðasta hringinn einn. Hver hringur byrjar alltaf á heila tímanum og er mikilvægt að keppendur séu komnir í ráshólfið og hlaupi af stað þegar bjallan hringir á heila tímanum. Hlauparar sem eru ekki komnir í ráshólfið á heila tímanum þegar hringur er ræstur eru dæmdir úr keppni. Eftir hvern hring má nota tímann sem er eftir af klukkutímanum til að hvílast og undirbúa sig fyrir næsta hring. Heildarvegalengd hlaupara sem klárar 24 hringi (24 klukkutímar) er 100 mílur (160,8km).

Greiðsluskilmálar

Greitt við skráningu.
15.900 kr.
Til 31. desember
Bolur valkvæður (ekki innifalinn)

Hlaupið endurgreiðir ekki skráningargjaldið. Eftir 30. ágúst þarftu að senda tölvupóst á [email protected] til að gera nafnabreytingu á miðanum þínum. Sá sem tekur við miðanum þarf að vera í afriti (cc) í tölvupóstinum, en hann þarf síðan að skrá sig sjálfur skv. leiðbeiningum mótshaldara og greiðir á sama tíma breytingargjald. Frá 31. ágúst til 13. september er 2.900 kr. breytingagjald. ENGAR NAFNABREYTINGAR VERÐA GERÐAR EFTIR 13. SEPTEMBER.

Fyrirkomulag

Keppnisnúmer og tímataka: Þú hleypur eins marga hringi og þú vilt. Keppninni lýkur þegar aðeins einn hlaupari nær að ljúka hring.
Hressing og veitingar á drykkjarstöð allan tímann.
Heitar veitingar í keppninni
Þátttökuviðurkenning
Góð drykkjarstöð og aðstaða fyrir hlaupara verður í Elliðaárstöð. Lögð verður áhersla á skemmtilega og fjöruga umgjörð allan daginn. Starfsfólk og sjálfboðaliðar Náttúruhlaupa verða til taks fyrir þátttakendur í hvíldartímanum.
Rútuferðir og keppnisbolur. Sendur verður póstur á þátttakendur góðum tíma fyrir hlaupið þar sem þeim gefst kostur á að versla mat og rútuferðir í forsölu. Með því að smella á flipana að ofan má sjá hvaða matur og rútuferðir eru í boði. Sú breyting er þetta árið að matur eftir hlaup er innifalinn en keppnisbolurinn er valkvæður og kostar aukalega.  Í ár er Helgafellsbolurinn úr nýju hlaupalínu 66° Norður í boði í fallegum grágrænum lit á aðeins 6.000 kr.
Maturinn í Volcano Huts eftir hlaup er innifalinn í verðinu.
Grillaður hamborgari m. frönskum
Veggie borgari m. frönskum
Hringferð frá Reykjavík fyrir keppendur – 19.800 kr.
Volcano Huts > Skógar, önnur leið – 12.500 kr. (keppendur)
Hringferð frá Reykjavík fyrir áhorfendur (einnig innifalið far frá Skógum í Húsadal) – 21.800 kr.
Hringferð frá Skógum fyrir áhorfendur – 16.500 kr.
Far yfir Krossá, báðar leiðir – 6.500 kr á mann. (Áhorfendur á fjórhjóladrifnum jeppum sem komast yfir hinar árnar)

Keppnisleiðin

Sjá nákvæmt kort og gpx-skrá af hlaupaleiðinni hér.

Aldurstakmark í hlaupið er 18 ár.

Sjá nánar almennar reglur í bakgarðshlaupum: http://backyardultra.com/rules/.

Keppendur fá sendar ítarlegar upplýsingar um fyrirkomulag og reglur í tölvupósti.

Þátttöku-/DNF viðurkenning fyrir alla sem taka þátt. Sá sem klárar Bakgarðshlaupið fær glæsileg verðlaun og viðurkenningu.

Drykkjarstöð og aðstaða fyrir hlaupara verður við Elliðavatnsbæ. Lögð verður áhersla á skemmtilega og fjöruga umgjörð allan daginn. Starfsfólk og sjálfboðaliðar Náttúruhlaupa verða til taks allan daginn fyrir þátttakendur í hvíldartímanum.

Skráningu lýkur á miðnætti 9. september að því gefnu að hlaupið verði ekki orðið fullt. Skráningargjöld verða ekki endurgreidd en hægt að gera nafnabreytingar til og með 9. september.

Keppendur sem ljúka að minnsta kosti 15 hringjum geta sótt um að gerast félagar í Félagi 100km hlaupara á Íslandi (www.100km.is)

Ein vinsælasta leið landsins

Leiðin um Fimmvörðuháls er ein fegursta og vinsælasta gönguleið landsins. Hún er ekki síður skemmtileg náttúruhlaupaleið. Frá Skógum liggur leiðin meðfram Skógá þar sem ótal fossar blasa við, hverjum öðrum fallegri. Farið er yfir göngubrú, áin yfirgefin og farið austari leiðina meðfram akveginum og framhjá Balvinsskála. Þar verður drykkjarstöð. Nú er mesta hækkunin að baki en heildarhækkun er um 1400 m.

Næst er hlaupið um 3 km um Fimmvörðuhálsinn sjálfan þar til komið að Goðahrauni sem rann í eldgosinu árið 2010 úr gígunum Magna og Móða. Hlaupið er í gegnum Goðahraun, framhjá gígunum. Fljótlega eftir Goðahraun hefst lækkunin. Farið er niður Bröttufönn og síðan Heljarkamb. Þar eru keðjur til stuðnings stuttan spotta og þarf að fara varlega. Leiðin er þó vel fær, jafnvel fyrir lofthrædda. Við tekur Morinsheiðin sem er flöt og þægileg að hlaupa. Þar eftir heldur lækkunin áfram og fljótlega er hlaupið yfir Kattahryggi. Þar þarf að taka tillit og fara varlega en sumir verða lofthræddir. Lækkunin heldur áfram niður í Strákagil. Þaðan er hlaupið tiltölulega þægilega leið framhjá Básum, göngubrúna yfir Krossá og að Volcano Huts í Húsadal.

Spurningar og svör

Götuhlaupaskór duga í mörgum tilfellum en við mælum með því að fólk fjárfesti í náttúruhlaupaskóm (trail skór eða utanvegaskór). Náttúruhlaupaskór eru hannaðir til að veita góða vörn fyrir fæturna og grípa betur á t.d. blautum steinum, í drullu eða í lausamöl. Í slíkum tilfellum eru þeir nauðsynlegur öryggisbúnaður.

Í raun er það einstaklingsbundið þó flestum finnist bakpokarnir þægilegri auk þess sem þeir eru plássmeiri. Svona heilt yfir þá er í styttri hlaupum í góðu veðri nóg að vera með hlaupabelti en í vetrarhlaupum er gott að hafa hlaupabakpoka og geyma þá auka húfu og vettlinga ásamt einhverri orku í pokanum.

Upplýsingar

Bakgarður Heiðmörk

Dagsetningar
19.09.2026
Tími
09:00
Staða
Lokað
Verð
15.900 kr.
Lengd
6,7km

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields