Námskeið

Laugavegsnámskeið

Æfðu með okkur fyrir Laugaveginn og þú hleypur skælbrosandi í markið í Þórsmörk 17. júlí!
Kynningarkvöld á Laugavegsnámskeiðinu verður haldið 23. nóvember kl. 19:30 í verslun 66°Norður Faxafeni. Sjá viðburð

Dagsetningar

31.03.2027

Staða

Skráning opnar 25. nóvember

Verð

59.500 kr.

Lengd

15 vikur
Dagsetningar
31.03.2027
Verð
59.500 kr.

Laugavegsnámskeið Náttúruhlaupa

Laugavegsnámskeið Náttúruhlaupa hefur notið mikilla vinsælda í áratug! Námskeiðið býður upp á faglega leiðsögn, markvissa æfingaáætlun, getuskipta hópa og fjölbreyttar sameiginlegar æfingar tvisvar í viku. Námskeiðið stendur yfir í 15 vikur. Fyrsta sameiginlega æfingin verður 31. mars og stendur námskeiðið fram að Laugavegshlaupinu sem fer fram 17. júlí 2027.

Umsjón: Elísabet Margeirsdóttir og Kjartan Long

Fyrir hverja?

Námskeiðið er fyrir alla sem hafa góðan bakgrunn í hlaupum og stefna á Laugavegshlaupið 2027.

Æskilegt er að þátttakendur…
hafi hlaupið reglulega í nokkur ár og fram að námskeiðinu. Gott að miða við a.m.k. 40km á viku.
hafi nýlega tekið þátt í lengri utanvegahlaupi (Fimmvörðuhálshlaupinu (28km) eða sambærilegu utanvegahlaupi, 25-30km).
Séu tilbúnir að fylgja markvissri æfingaáætlun og takast á við stóra og skemmtilega hlaupaáskorun.
Til að tryggja góðan árangur í Laugavegshlaupinu er mikilvægt að stunda hlaup reglulega þangað til að námskeiðið hefst (hlaupa a.m.k. 3x í viku í 60 mínútur og taka eina lengri æfingu á viku sem er a.m.k. 90 mínútur). Við mælum með Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa fyrir þá sem vilja koma sér í góðan hlaupagír áður en námskeiðið hefst og hlaupa í skemmtilegum félagsskap!

Fyrirkomulag

Staðsetning og nánari upplýsingar um allar æfingar verða aðgengilegar í gegnum Abler appið.
Æfingaáætlun eftir getu er gefin út vikulega. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hlaupi 2-3x í viku á eigin vegum skv. æfingaáætlun. Þjálfarar aðstoða þátttakendur við að samtvinna æfingaáætlun við aðra hreyfingu og rútínu.
Tveir fræðslufundir verða haldnir í tengslum við þátttöku í lengri náttúruhlaupum með áherslu á Laugavegshlaupið. Einn í upphafi námskeiðs og annar þegar um 2-3 vikur eru í keppnina.
Eitt langt upplifunarhlaup á viku í getuskiptum hópum.
Ein sameiginleg gæðaæfing á viku.
Lokaður Facebook hópur fyrir upplýsingar og samskipti (notum Abler til að miðla upplýsingum um sameiginlegar æfingar).
Léttar styrktaræfingar til að gera heima
Fjölbreyttar og spennandi hlaupaleiðir allt tímabilið. Æfingaplan sent út vikulega.
Fræðslukvöld
Æfingaferð í Þórsmörk með þjálfurum (þátttakendur greiða gjald fyrir rútu og aðstöðu).
ATH. Laugardaginn 1. maí (Bakgarður 101) má gera ráð fyrir sjálfstæðari æfingu með færri þjálfurum. Helgina 12.-13. júní verður sameiginleg æfing 13. júní en ekki 12. júní (hvetjum þátttakendur að fara í Mt. Esja hálfmaraþonið 12. júní).

Tímasetning æfinga

Laugavegsnámskeið
Gæðaæfing
kl. 17:30
Laugavegsnámskeið
Upplifunaræfingar
kl. 08:45

Spurningar og svör

Námskeið fást að fullu endurgreidd ef hætt er við það a.m.k. tveimur dögum áður en það hefst.  Berast þarf tilkynning þess eðlis á [email protected]. Eftir að námskeiðið hefst, er gjaldið óendurkræft.

Það eru tvær leiðir til að nálgast kvittanir og sjá áskriftir

Aðeins er hægt að ná í kvittun á PDF formi í gegnum tölvu eða vafra á síma.

Í appinu

1. Lengst niðri til hægri sjáið þið 3 láréttar línur og smellið á þær.

2. Á „Mitt svæði“ er hægt að skoða stillingar, áskriftir, kvittanir og það sem er ógreitt.

Í vafra(tölvu)

1. Farið í vafra og inn á síðuna: www.sportabler.com/shop/natturuhlaup

2. Skráið ykkur inn efst í hægra horninu. Þegar búið er að skrá sig inn er hægt að smella á reikningar og áskriftir efst í hægra horninu.

3. Hægt er að niðurhala kvittunum í PDF formi í reikningar.

Götuhlaupaskór duga í mörgum tilfellum en við mælum með því að fólk fjárfesti í náttúruhlaupaskóm (trail skór eða utanvegaskór). Náttúruhlaupaskór eru hannaðir til að veita góða vörn fyrir fæturna og grípa betur á t.d. blautum steinum, í drullu eða í lausamöl. Í slíkum tilfellum eru þeir nauðsynlegur öryggisbúnaður.

Góða trail hlaupaskó, þægileg íþróttaföt, vindjakka, húfu og vettlinga. Á veturnar er skylda að eiga höfuðljós og hlaupabrodda (t.d. frá Kahtoola). Þeir sem hlaupa mikið lengur en 1 klst í einu þurfa að eiga hlaupabakpoka til að bera næringu, vökva og fatnað. Þátttakendur í silfurgráa hópi hlaupasamfélagsins og ultra námskeiðs, þurfa að eiga GPS hlaupaúr með „navigation“ og kunna að fara eftir trakki, sjá hér: https://vimeo.com/409768173

Upplýsingar

Laugavegsnámskeið

Dagsetningar
31.03.2027
Staða
Lokað
Verð
59.500 kr.
Áskrifendur
49.900 kr.
Lengd
15 vikur
Erfiðleikastig
Miðlungs / Erfitt
Kynningarkvöld 23. nóvember kl. 19:30 í verslun 66°Norður Faxafeni

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields