Við kynnum Ultra námskeið Náttúruhlaupa fimmtudaginn 24. Nóvember kl. 19:30 í verslun 66°Norður Faxafeni. Sjá Facebook event. Ultra námskeið Náttúruhlaupa hefur verið haldið síðast liðin 3 ár og er ætlað vönum hlaupurum sem hafa mikla reynslu af utanvegahlaupum og stefna á lengri keppnishlaup í vor eða sumar (50km+). Um er að ræða einstaklingsmiðaða hópþjálfun sem fer fram í fjarþjálfun en þátttakendur nýta sér sameiginlegar æfingar Hlaupasamfélags Náttúruhlaupa. Námskeiðið hefst 1. febrúar og stendur yfir í fimm mánuði.
Umsjón og þjálfarar: Rúna Rut Ragnarsdóttir og Elísabet Margeirsdóttir
"*" indicates required fields
"*" indicates required fields