Ultra námskeið Náttúruhlaupa hefur verið haldið síðast liðin þrjú ár og er ætlað vönum hlaupurum sem hafa mikla reynslu af utanvegahlaupum og stefna á lengri utanvegahlaup (50km+).
Við kynnum Ultra námskeið Náttúruhlaupa fimmtudaginn 24. Nóvember kl. 19:30 í verslun 66°Norður Faxafeni. Sjá Facebook event.
Course
starts after
00
Days
:
00
Hrs
:
00
Min
Æfingatímabilið
Byrjun febrúar til lok júní. Lágmarks binditími eru 3 mánuðir.
Almenn verð
19.900 kr./mánuði
Verð fyrir ársáskrifendur í Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa
14.900 kr./mánuði
Umsjón og þjálfun
Elísabet Margeirsdóttir og Rúna Rut Ragnarsdóttir
Um er að ræða einstaklingsmiðaða hópþjálfun sem fer fram í fjarþjálfun en þátttakendur nýta sér sameiginlegar æfingar Hlaupasamfélags Náttúruhlaupa. Námskeiðið hefst 1. febrúar og stendur yfir í fimm mánuði. Frá og með apríl verður vikuleg gæðaæfing aðeins fyrir Ultra námskeiðið.
Sérstakt Laugavegsnámskeið er haldið fyrir þá sem að stefna á Laugavegshlaupið 2023
Umsjón
Um Námskeiðið
Fyrirkomulag námskeiðsins
Námskeiðið stendur samtals yfir í 5 mánuði og þurfa þátttakendur að binda sig í minnst þrjá mánuði.
Um er að ræða einstaklings miðaða hópþjálfun sem fer fram í fjarþjálfun en hlaupari nýtir sér sameiginlegar æfingar Hlaupasamfélags Náttúruhlaupa.
Í febrúar og mars er áhersla á að byggja upp styrk, snerpu og reglulega iðkun sem er lykilinn að árangri í ultra hlaupi. Þátttakendur fylgja æfingaplani og sækja þær gæðaæfingar sem að eru lagðar til hverju sinni.
Löngu hlaupin eru tekin með Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa, og yfirleitt með Silfurgráa hópnum. Hver og einn hleypur á sínum hraða en krafa er um að geta fylgt GPS trakki. Silfurgrái hópurinn er hraður hópur en þeir sem að skrá sig í Ultra námskeiðið hlaupa sömu vegalengd en á sínum hraða. Þjálfari er með hópnum en ekki þessi sama umgjörð og aðrir hópar Hlaupasamfélagsins bjóða upp á (þe það sé fremstur og aftasti leiðtogi). Þátttakendur þurfa að kunna að hlaupa eftir GPS trakki en ekki þarf að kunna það í byrjun námskeiðsins, en þetta er eitt af því sem að þátttakendur fá þjálfun í.
Frá apríl bætist við lokuð gæðaæfing fyrir Ultra námskeiðið á miðvikudögum kl. 17:30. Áhersla verður á sérhæfðari undirbúning. Á þessu tímabili verða einstaka laugardagsæfingar teknar sér með Ultra námskeiðinu, þegar við á.
Æfingaáætlun verður gefið út eina til tvær vikur í senn. Æfingaáætlunin verður uppsett í æfingaforritinu Training Peaks.
Almennum upplýsingum verður miðlað á lokuðum Facebook hóp Ultra námskeiðsins og æfingum á Sportabler.
Q&A session og fyrirlestrar verða reglulega allt tímabilið þar sem áhersla er á fræðslu tengda ofurhlaupaþjálfun, næringu og búnaði.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Námskeiðið er fyrir vana hlaupara sem hafa töluverða reynslu af utanvegahlaupum. Hafa hlaupið reglulega (4-5 klst á viku) og vanir lengri hlaupaæfingum (>1,5-2 klst)
Námskeiðið hentar sérstaklega þeim sem eru að stefna á ofurhlaup á tímabilinu apríl til júní 2023. Ekki er gerð krafa um ákveðinn hraða á þessu námskeiði.
Hver er æskileg reynsla fyrir það keppnishlaup sem ég stefni á?
Hvað þarf að eyða miklum tíma í æfingar?
Á sameiginlegum æfingum er þjálfari en þjálfari er ekki endilega fremstur og/eða aftastur. Það er því lögð áhersla á sjálfstæði þátttakenda á þessu námskeiði og gerð krafa um að þátttakendur geti fylgt GPS trakki. Hægt verður að fá góðar leiðbeiningar um rötun fyrir þá sem kunna það ekki nú þegar.
Sérstakt Laugavegsnámskeið er haldið fyrir þá sem að stefna á Laugavegshlaupið 2023.
Æfingatímar og fyrirkomulag æfinga
Langi túrinn er á laugardögum kl. 9:00. Þessar æfingar eru stílaðar inn á fjölbreyttar náttúruleiðir á þægilegum hraða. Gera má ráð fyrir að hver æfing sé um 18-30km og taki 2,5-5klst (lengra fyrir þá sem stefna á 100km+).
Gæðaæfingar Ultra námskeiðsins (byrja í apríl) verða á miðvikudögum kl. 17:30 og verður lögð áhersla á endurtekningar, hraða, brekkur o.fl. Þessar æfingar taka yfirleitt frá 60-90 mín með upphitun og niðurskokki. Einstaka sinnum verða gerðar léttar styrktaræfingar.
Ef veðurspá og/eða færð er mjög slæm, t.d. appelsínugul viðvörun eða mikil hálka á helstu leiðum, geta sameiginlegar æfingar fallið niður eða þær færðar til (fólk hleypur þá á eigin vegum eftir áætlun/leiðbeiningum þjálfara).
Þjálfari er á öllum sameiginlegum æfingum og stýrir upphitun, útskýrir æfinguna og hleypur með hópnum. Þjálfari er ekki endilega fremstur og/eða aftastur á löngu æfingunum. Það er því lögð áhersla á sjálfstæði þátttakenda á þessu námskeiði og gerð krafa um að þátttakendur geti fylgt GPX trakki. Hægt verður að fá góðar leiðbeiningar um rötun fyrir þá sem kunna það ekki nú þegar.
Upplýsingum verður miðlað á lokuðum Facebook hóps Ultra námskeiðsins og æfingum á Sportabler.
Full price
Hver mánuður í Ultra námskeiðinu kostar 19.900 kr. (innifalið í því er aðgangur að öllum æfingum Hlaupafélags Náttúruhlaupa).
Áskrifendur í Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa greiða 14.900 kr.
Lágmarksbinditími í Ultra námskeiðinu eru þrír mánuðir. Hægt er að koma inn í námskeiðið 1. febrúar, 1. mars eða 1. apríl.
Hámarksfjöldi á námskeiðinu eru 30 þátttakendur.
Umsagnir
Ég fékk óbilandi trú á þjálfaranum sem nálgaðist viðfangsefnið af yfirvegun og virðingu. Rúna Rut hefur greinilega kynnt sér flest í kringum utanvegahlaup, löng og stutt og þá sjaldan sem hún var ekki með svör á reiðum höndum óskaði hún eftir tíma til að kynna sér málið og svaraði svo. Engar öfgar og ekkert bull, engin sölumennska bara hreinn og klár fróðleikur og skemmtun. Getustigið í hópnum var mismunandi en mín upplifun er að allir hafi fengið verkefni við sitt hæfi og allir eru að mínu viti bæði betri og fróðari einstaklingar eftir námskeiðið. Það er gott að vita til þess að maður mætir alltaf brosi þegar maður kemur á æfingar og gleðin var ávallt í fararbroddi. Get heilshugar mælt með þessu námskeiði.
Teitur Ingi Valmundsson
Ég hafði mikla gleði af þessu námskeiði. Utanumhald og umgjörð mjög flott. Æfingaplanið sem ég fékk, hentaði mér fullkomlega og mín tilfinning er, að það hafi verið sérsniðið sérstaklega að mér og hver mín staða var á hverjum tíma punkti. Upplýsingaflæði og skipulag var til fyrirmyndar. Það var alltaf á hreinu hvað átti að gera, hvar og hvenær. Covid skapaði áskoranir á tímabilinu en það var allt leyst mjög vel. Fagmennska út í gegn.
Óttar Kjartansson
Ég hef aldrei síðan ég hætti í fótbolta fyrir tvítugt mætt á jafn margar æfingar, tekið jafn mikinn þátt og verið jafn involveraður í neinu námskeiði fyrr en núna. Ég er gjörsamlega húkt á náttúruhlaupum og hugmyndinni um ultra hlaup og kúltúrnum þar innanborðs.
Náttúruhlaup hafa gjörbreytt því hvernig ég hugsa um helgarnar. Löng hlaup um helgar í góðum félagsskap er nefnilega besta djammið.
Náttúruhlaup hafa gjörbreytt því hvernig ég hugsa um helgarnar. Löng hlaup um helgar í góðum félagsskap er nefnilega besta djammið.
Daníel Guðmundur Daníelsson
Previous
Next
Upplifunaræfingar
Gæðaæfingar
Fjallaæfingar
Upplifunaræfingar
Laugardagur kl.9:00
Gæðaæfingar
Miðvikudagur 17:30
Fjallaæfingar
Q&A
"*" indicates required fields
"*" indicates required fields