5VH námskeið

Námskeið fyrir hlaupara sem vilja þjálfa sig upp í að taka þátt í 20-30km utanvegahlaupi í skemmtilegum félagsskap og undir handleiðslu reyndra hlaupaþjálfara. Samskonar uppbygging og á Laugarvegsnámskeiðinu og gott milliskref fyrir þau sem stefna á það ári seinna.

  • 29. apríl 2025
  • Registration is closed
  • Verð: 58.500 kr.
  • Lengd: 14 vikur
  • Erfiðleikastig: Miðlungs
  • Skráningarstaða: Skráning opnar 8. nóvember
  • Verð fyrir áskrifendur Hlaupasamfélagsins: 48.500 kr.
00

Dagar Dagur

00

Hrs Hrs

00

mín Mín

5VH námskeið

Þátttakendur undirbúa sig fyrir Fimmvörðuhálshlaupið (5VH Trail Run) 9. ágúst eða annað utanvegahlaup síðla sumars 2025.

Námskeiðið er hugsað fyrir fólk sem hefur hlaupið reglulega síðast liðið ár og vill þjálfa sig upp í að taka þátt í 20-30km utanvegahlaupi í skemmtilegum félagsskap og undir handleiðslu reyndra hlaupaþjálfara.

5VH námskeiðið er einnig góður undirbúningur fyrir önnur utanvegahlaup (20-30km) sem haldin verða seinni part sumars t.d. Dyrfjallahlaupið, Súlur Vertical, Jökulsárhlaupið,  7 tinda hlaupið o.fl.

Skráning í Fimmvörðuhálshlaup Náttúruhlaupa (5VH Trail Run) er lokuð en opnar 8. nóvember. Samtímis opnar skráning á námskeiðið.

Fyrirkomulag námskeiðsins

Tvær sameiginlegar æfingar á viku: Á þriðjudögum kl. 17:30 og sunnudögum kl. 9:00.

Æfingar hefjast 29. apríl og námskeiðinu lýkur með Fimmvörðuhálshlaupinu 9. ágúst.

Staðsetning og nánari upplýsingar um allar æfingar verða aðgengilegar í gegnum Sportabler appið.

Æfingaáætlun eftir getu. Gert er ráð fyrir því að þátttakendur hlaupi nokkrum sinnum í viku á eigin vegum skv. æfingaáætlun.

Tveir fræðslufundir verða haldnir í tengslum við utanvegahlaup.

Þátttakendur fá 15% afslátt af 5VH Trail Run.

(Athugið þó að afslátturinn er ekki afturkræfur)

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið hentar hlaupurum sem hafa góðan grunn og langar að þjálfa sig upp í að geta hlaupið utanvegahlaup sem er á bilinu 20-30km. Miðað er við að námskeiðið henti flestum sem hafa hlaupið með vínrauðum á upplifunaræfingum eða hafa hlaupið 10-15km um helgar áður en námskeiðið hefst. 

Æskilegt er að þátttakendur…

Hafi hlaupið reglulega síðast liðið ár

Séu vanir að hlaupa 10-15km um helgar áður en námskeiðið hefst

Séu tilbúnir að fylgja markvissri æfingaáætlun og takast á við skemmtilega hlaupaáskorun

Til að tryggja góðan árangur er mikilvægt að stunda hlaup reglulega þangað til að námskeiðið hefst (hlaupa a.m.k. 2-3x í viku í 30-60 mínútur og taka eina lengri æfingu á viku sem er a.m.k. 60-90 mínútur). Við mælum með Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa fyrir þá sem vilja koma sér í góðan hlaupagír áður en námskeiðið hefst og hlaupa í skemmtilegum félagsskap.

Hópurinn verður hvattur til að skrá sig í ýmsar æfingakeppnir á tímabilinu sem nýtist sem góður undirbúningur fyrir lokamarkmiðið. 

Innifalið í námskeiðinu

Eitt langt upplifunarhlaup í getuskiptum hópum á viku.

Ein sameiginleg gæðaæfing á viku.

Lokaður Facebook hópur fyrir upplýsingar og samskipti (notum Abler til að miðla upplýsingum um sameiginlegar æfingar).

Fjölbreyttar og spennandi hlaupaleiðir allt tímabilið.

Æfingaplan eftir getu

Tvö fræðslukvöld

Tímasetning æfinga

Upplifunaræfingar
  • Sunnudagur kl.9:00
Gæðaæfingar
  • Þriðjudagur kl.17:30

Q&A

Námskeið fást að fullu endurgreidd ef hætt er við það a.m.k. tveimur dögum áður en það hefst.  Berast þarf tilkynning þess eðlis á [email protected]. Eftir að námskeiðið hefst, er gjaldið óendurkræft.

Yes, 7 hours. The race must be finished before 16:00.

Það eru tvær leiðir til að nálgast kvittanir og sjá áskriftir

Aðeins er hægt að ná í kvittun á PDF formi í gegnum tölvu eða vafra á síma.

Í appinu

1.Lengst niðri til hægri sjáið þið 3 láréttar línur og smellið á þær.

2.Á „Mitt svæði“ er hægt að skoða stillingaráskriftirkvittanir og það sem er ógreitt.

Í vafra(tölvu)

1.Farið í vafra og inn á síðuna: www.sportabler.com/shop/natturuhlaup

2.Skráið ykkur inn efst í hægra horninu. Þegar búið er að skrá sig inn er hægt að smella á reikningar og áskriftir efst í hægra horninu.

3.Hægt er að niðurhala kvittunum í PDF formi í reikningar.

Street running shoes are sufficient in many cases, but we recommend that people invest in natural running shoes (trail shoes or off-road shoes). Nature running shoes are designed to provide good protection for the feet and grip better on e.g. wet stones, mud or loose gravel. In such cases, they are essential safety equipment.

5VH námskeið

  • Apríl 2024
  • Skráning opnar í nóvember
  • Verð: 57.500 kr.
  • Lengd: 14 vikur
  • Erfiðleikastig: Miðlungs
  • Markmið: 20-30km keppni
  • Verð fyrir áskrifendur Hlaupasamfélagsins: 47.500 kr.
Náttúruhlaup eru rekin af Arctic Running. Við leggjum áherslu á að njóta þess að hlaupa í fallegri náttúru. Kennitala: 5­701­12-03­10. VSK númer 122691.
Skráðu þig á póstlista
Fáðu fréttir af Náttúruhlaupum.
Öll réttindi áskilin © Náttúruhlaup

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields

Náttúruveitan
Fáðu fréttirnar fyrst

Skráðu þig á póstlista Náttúruhlaupa og fáðu vita um leið og við opnum fyrir skráningu á námskeiðum, setjum út nýjar ferðir eða gerum eitthvað annað spennandi. Öll tækifærin beint í innhólfið 😊

"*" indicates required fields