Með virkri þátttöku á námskeiðinu munt þú koma brosandi í mark í Laugavegshlaupinu 2025!
Dagar Dagur
Hrs Hrs
mín Mín
seconds second
Laugavegsnámskeið Náttúruhlaupa hefur notið mikilla vinsælda síðast liðin ár og verður nú haldið í áttunda skiptið. Námskeiðið býður uppá faglega leiðsögn, markvissa æfingaáætlun, getuskipta hópa og fjölbreyttar sameiginlegar æfingar tvisvar í viku. Námskeiðið stendur yfir í 15 vikur. Fyrsta sameiginlega æfingin verður 2. apríl og stendur námskeiðið fram að Laugavegshlaupinu sem fer fram 12. júlí 2025.
Umsjón: Elísabet Margeirsdóttir
Námskeiðið er fyrir alla sem hafa góðan bakgrunn í hlaupum og stefna á Laugavegshlaupið 2025.
Æskilegt er að þátttakendur…
Til að tryggja góðan árangur í Laugavegshlaupinu er mikilvægt að stunda hlaup reglulega þangað til að námskeiðið hefst (hlaupa a.m.k. 2-3x í viku í 30-60 mínútur og taka eina lengri æfingu á viku sem er a.m.k. 60-90 mínútur). Við mælum með Hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa fyrir þá sem vilja koma sér í góðan hlaupagír áður en námskeiðið hefst og hlaupa í skemmtilegum félagsskap!
ATH. Það verður ekki sameiginlegt laugardagshlaup um páskahelgina (þátttakendur hlaupa skv. plani á eigin vegum). Laugardaginn 3. maí verður æfing með færri þjálfurum. Helgina 14.-15. júní verður sameiginleg æfing 15. júní en ekki 14. júní (Mælt með að fólk taki þátt í Mt. Esja hálfmaraþoninu 14. júní).
Námskeið fást að fullu endurgreidd ef hætt er við það a.m.k. tveimur dögum áður en það hefst. Berast þarf tilkynning þess eðlis á [email protected]. Eftir að námskeiðið hefst, er gjaldið óendurkræft.
Það eru tvær leiðir til að nálgast kvittanir og sjá áskriftir
Aðeins er hægt að ná í kvittun á PDF formi í gegnum tölvu eða vafra á síma.
Í appinu
1.Lengst niðri til hægri sjáið þið 3 láréttar línur og smellið á þær.
2.Á „Mitt svæði“ er hægt að skoða stillingar, áskriftir, kvittanir og það sem er ógreitt.
Í vafra(tölvu)
1.Farið í vafra og inn á síðuna: www.sportabler.com/shop/natturuhlaup
2.Skráið ykkur inn efst í hægra horninu. Þegar búið er að skrá sig inn er hægt að smella á reikningar og áskriftir efst í hægra horninu.
3.Hægt er að niðurhala kvittunum í PDF formi í reikningar.
Yes, 7 hours. The race must be finished before 16:00.
Það þarf ekki að mæta með gel á laugardagsæfingar þó það geti verið ágætt að hafa með sér eitt gel eða aðra orku (t.d. súkkulaði eða þurrkaða ávexti) til öryggis. Það er þó góð regla að hafa vökva og næringu í bílnum og fá sér á leiðinni heim. Ef æfingin er lengur en 1,5 klst, þarf að hafa vökva og næringu með.
Street running shoes are sufficient in many cases, but we recommend that people invest in natural running shoes (trail shoes or off-road shoes). Nature running shoes are designed to provide good protection for the feet and grip better on e.g. wet stones, mud or loose gravel. In such cases, they are essential safety equipment.
Góða trail hlaupaskó, þægileg íþróttaföt, vindjakka, húfu og vettlinga. Á veturnar er skylda að eiga höfuðljós og hlaupabrodda (t.d. frá Kahtoola). Þeir sem hlaupa mikið lengur en 1 klst í einu þurfa að eiga hlaupabakpoka til að bera næringu, vökva og fatnað. Þátttakendur í silfurgráa hópi hlaupasamfélagsins og ultra námskeiðs, þurfa að eiga GPS hlaupaúr með „navigation“ og kunna að fara eftir trakki, sjá hér: https://vimeo.com/409768173
"*" indicates required fields
"*" indicates required fields