Þann 19. október 2024 fer fram Heimsmeistaramót landsliða í bakgarðshlaupum. Með tilkomu Bakgarðshlaupa Náttúruhlaupa hefur Ísland unnið sér inn þátttökurétt á heimsmeistaramótinu og veitt hlaupurum hér á landi tækifæri á að komast í íslenska landsliðið.
Í heild eru yfir 60 lönd sem keppa (38 lönd kepptu árið 2022 í sömu keppni) og hvert land hleypur í sínu eigin landi og hefja keppni á nákvæmlega sama tíma.
Keppnin byrjar kl. 12:00 á hádegi á íslenskum tíma. Markmið liðsins er að ná sem flestum samanlögðum fjölda hringja á meðan keppnin er enn í gangi. Númer hvers keppanda fer eftir árangri og munu þau einnig keppast um að sigra sinn númeraflokk. Þegar aðeins einn keppandi í íslenska liðinu er eftir og hefur lokið einum hring einn (sigurvegarinn) þá lýkur keppninni á Íslandi. Sigurvegari íslensku keppninnar vinnur sér inn þátttökurétt á Heimsmeistaramóti einstaklinga í bakgarðshlaupum 2025.
Keppnisstaðurinn á Íslandi verður í Elliðaárdal og hefst hringurinn við Elliðaárstöð Orkuveitu Reykjavíkur. Keppendur og starfsfólk mun hafa aðstöðu í byggingum Orkuveitu Reykjavíkur og er Elliðaárstöðin og svæðið í kring tilvalið fyrir áhorfendur til að koma og fylgjast með keppendum leggja af stað í hvern hring eða sjá þau koma í mark.
Hlaupabrautin er eins og í öllum viðurkenndum bakgarðshlaupum 6,706 km löng og fer um frábæra stíga í og í kringum hólmann. Brautinn inniheldur litla hækkun og er að mesta á náttúrustígum.
Vakin er athygli á því að skv. reglum keppninnar er stranglega bannað að hlaupa með keppendum í brautinni eða aðstoða (t.d. rétta hluti) á meðan þau eru enn að hlaupa hringinn.
Here you can see the route. By clicking on the plane in the picture to the side, you can better understand the terrain, ascents and descents along the way.
Fylgist með keppninni á Facebook síðu Bakgarðshlaupa Náttúruhlaupa!
Liðið er skipað 15 hlaupurum sem tryggðu sér sæti í liðinu út frá árangri í bakgarðskeppnum á tímabilinu ágúst 2022-ágúst 2024.
"*" indicates required fields
"*" indicates required fields