KOSTIR VIÐ NÓRA

Það eru mikil gleðitíðindi að Náttúruhlaup eru núna komin með gott skráningarkerfi með gagnagrunni. Það mun ekki aðeins auðvelda okkur vinnuna heldur hefur það ýmsa kosti í för með sér fyrir ykkur, kæru Náttúruhlauparar:

  • Rafrænar greiðslukvittanir: Nú fáið þið rafrænar greiðslukvittanir sem stéttafélögin taka góð og gild.
  • Gagnagrunnur: Það þýðir að þið þurfið ekki að skrá inn upplýsingar um ykkur aftur og aftur…og aftur 
  • Öryggi: Innskráning er með rafrænum skilríkjum og öll meðferð á persónugögnum samkvæmt öllum stöðlum.
  • Sveigjanleiki: Með þessu greiðslukerfi verður aukinn sveigjanleiki varðandi afborgarnir.