Tenerife 2023

Hvað er betra en að brjóta veturinn upp með því að fara í sólarlandafrí?

Aðeins eitt…

að hlaupa eða ganga í fallegri og fjölbreyttri náttúru á milli þess sem slakað er á við sundlaugarbakkann eða á ströndinni 😎

Leiðirnar verða merktar þannig að hægt er að hlaupa á eigin hraða og einnig ganga.

Feb, 2023
Full price:
298.000 kr.
Registration is closed
Distance:
8 dagar
Tenerife

Tenerife fyrir öll getustig!

Náttúruhlaup bjóða í fyrsta skipti upp á ferð til þessa vinsæla áfangastaðar. Sólríku Kanaríueyjunnar í suðri, Tenerife! Birkir, Elísabet og Gunnur munu hlaupa fjölbreyttar leiðir með hópnum. Margir vita að strendurnar eru dásamlegar á Tenerife og veðrið er alltaf gott. Færri hafa þó uppgötvað hversu stórbrotið og fallegt landslagið er á eyjunni en hún er draumastaður náttúruhlaupara sem vilja skoða sig um á fjölbreyttum og góðum stígum. Komdu með og uppgötvaðu þessa paradís náttúruhlaupara í skemmtilegum félagsskap!

Boðið verður upp á 5 hlaupa/göngudaga á mismunandi stöðum á eyjunni og einn frjálsan dag inn á milli þar sem má sleikja sólina og slaka á eða gera eitthvað annað úr deginum. Allar leiðir eru 10-15 km langar á mismunandi náttúrustígum.  Gist verður á 4* stjörnu hóteli í Los Christianos (nálægt Amerísku ströndinni) en sú staðsetning er einstaklega hentug því þar er flott fjalllendi (Montana de Guaza) og náttúrustígar í göngufæri fyrir þá sem vilja hlaupa eða ganga meira. Beint flug og matur flesta daga er einnig innifalið í verðinu.

Lagt verður upp með að njóta allan tímann og því hentar ferðin öllum getustigum Náttúruhlaupa.

Who's fit

Fyrir hverja er ferðin?

Ferðin er hugsuð sem skemmtilegt og þægilegt frí fyrir hlaupara af öllum getustigum og reynslumikið göngufólk. 

Leiðirnar verða sérstaklega merktar fyrir hópinn og því geta allir farið á sínum hraða, hvort sem viðkomandi vill hlaupa frekar hratt eða ganga leiðirnar. 

Í frítíma sínum hefur fólk val um að bæta við vegalendir á skemmtilegu stígasvæði í grennd við hótelið.

Umsagnir

Hlaupaleiðir

Tenerife býður upp á ótrúlega fjölbreytt og stórbrotið landslag. Allt frá töfrandi skógum í stórkostlega fjallasýn. Eins og Ísland, er Tenerife eldfjallaeyja og minnir hraunið á heimahaga en annað má segja um veðrið. Hiti er 20-25°C við hótelið en hlaupin/göngurnar fara fram í fjalllendi Tenerife þar sem er um 15°C hiti.

Við hlaupum/göngum í Teide þjóðgarðinum (2000m) þar sem horft er niður á skýin og hlaupið í mögnuðu hraunlögðu fjalllendi á dásamlegum stígum. Einnig könnum við græna hluta eyjunnar í norðri og hlaupum um kynngimagnaða stíga Anaga þjóðgarðsins!

Allar leiðir eru 10-15 km og samanlögð hækkkun er yfirleitt 400-600 m. Meðaltals vegalengd eru 12 km og meðaltals hækkun 480 m.

Þeir sem vilja hlaupa meira, hafa ótrúlega skemmtilegt „leiksvæði“ nálægt hótelinu sem kynnt verður fyrir áhugasömum. Montana de Guaza stígakerfið er gríðarlega fjölbreytt og skemmtilegt og hinum megin við fjalllendið (Palm Mar) er að finna æðislegt náttúrusvæði með fullt af stígum og litlum hæðum.

Hópurinn mun njóta leiðsagnar Birkis Más Kristinssonar. Birkir er sjúkraþjálfari að mennt og framkvæmdarstjóri Náttúruhlaupa. Birkir mun bjóða upp á teygju- og hlaupastílstíma á frídeginum fyrir þá sem vilja. Hann leggur áherslu á að fólki líði vel og njóti upplifunarinnar í botn.

Með í för verða hlaupaþjálfararnir Elísabet Margeirsdóttir og Gunnur Róbertsdóttir og munu þær aðstoða við að leiða eða fylgja hópnum aftast.

Innifalið í verði:

  • Beint flug flug með Play (Ein innrituð 20 kg taska)
  • Fararstjórn
  • Gisting á 4 stjörnu hóteli í 7 nætur
  • Akstur á milli flugvallar og hótels við komu og brottför
  • 5x rútuferðir/dagshlaupaferðir 
  • Fullt fæði flesta daga
  • Aðgangur að Forestal Park Zip Line garði.

Ekki innifalið í verði:

  • Drykkir
  • Hádegismatur á degi 3 og 5
  • Kvöldverður á degi 5
  • Ferðatryggingar 
23. febrúar (fimmtudagur)
Ísland – Tenerife – Los Cristianos
Við komum á hótelið seinni partinn. Þar fáum við kynningu á hótelinu og umhverfinu, borðum saman kvöldmat og látum okkur hlakka til ævintýranna sem eru framundan.
23. febrúar (fimmtudagur)
24 .febrúar (föstudagur)
Las Lagunetas og Zip line Garður: 10 km og um 470 m hækkun
Við keyrum í 1,5 klst á Las Lagunetas svæðið. Við skemmtum okkur í Zip Line garðinum Forestal Park þar sem hægt er að renna sér á milli trjáa á miserfiðum brautum. Eftir 3 klst borðum við hádegisnestið og hlaupum næst 10 km leið með 470 m hækkun í skógi með risastórum trjám (a.m.k. á íslenskan mælikvarða!). Eftir léttar teygjur keyrum við aftur á hótelið og borðum þar kvöldmat.
24 .febrúar (föstudagur)
25. febrúar (laugardagur)
Vilaflor – Lunar: 15 km og um 650m hækkun
Þennan dag er aðeins 30 mínútna akstur til Vilaflor þaðan sem við hlaupum og skoðum meðal annars hið skemmtilega og flotta mánalandslag.

-Dásemdar dagur þar sem við tökum lengsta hlaupið með mestu hækkuninni (og hlaupum í u.þ.b. 1500 metra hæð) og verðum komin aftur á hótelið seinnipartinn, nægur tími til að skella sér í sólbað fyrir kvöldmat!
25. febrúar (laugardagur)
26. febrúar (sunnudagur)
Teide Þjóðgarðurinn: 10 km og um 400 m hækkun
Í dag keyrum við í tæpa klukkustund upp að Teide þjóðgarðinum þar sem við komumst í nálægð við hæsta fjall Spánar, El Teide (3718m). Við stoppum á mismunandi útsýnisstöðum og skoðum okkur um áður en við hlaupum gríðarlega fallega leið með fjallasýn, hrauni og undurfögrum eyðurmerkurgróðri. Við hlaupum í 2000 metra hæð og horfum niður á skýin!
26. febrúar (sunnudagur)
27. febrúar (mánudagur)
Frjáls dagur
Nú er frjáls dagur. Eftir morgunmat verður hlaupastíls- og liðkunartími í boði Birkis. Ströndin er í 1 km fjarlægð og þeir sem vilja geta farið með Birki í stutt hlaup að ströndinni og upp að fjalllendinu þar sem hægt er að hlaupa á stígum. Þar tekur við frjáls tími en þeir sem vilja geta haldið áfram að hlaupa og kannað svæðið betur á eigin vegum. Aðeins morgunmatur er innifalinn þennan dag og fólk fær tækifæri til að borða þar sem það kýs.
27. febrúar (mánudagur)
28. febrúar (þriðjudagur)
Anaga Þjóðgarðurinn: 14 km og um 620 m hækkun
Síðasti hlaupadaginn förum við nyrst á eyjuna í Anaga þjóðgarðinum. Leiðin einkennist af draumkenndum tjám, kaktusum og fallegu útsýni. Akstur u.þ.b. 1.5 klst aðra leið. Það er með ólíkindum hvað landslagið á eyjunni er fjölbreytt og þessi dagur er ólíkur öllu öðru.
28. febrúar (þriðjudagur)
1. mars (miðvikudagur))
Masca: 10 km hlaup, 280 m hækkun og 780 m lækkun.
Nú hlaupum við niður í frægasta þorp Tenerife og það fegursta að margra mati og þótt víðar væri leita. Þegar þangað er komið tökum við okkur góðan tíma í að skoða þorpið og útsýnið og fá okkur jafnvel eitthvað að drekka á veitingastaðnum. Síðan keyrum við niður í Los Gigantes og eyðum seinnipartinum á ströndinni í þessum fallega bæ 😁 Hádeigismatur er ekki innifalinn þennan dag. Fólk fær sér að borða í Los Gigantes. Við endum svo þennan síðasta dag á hótelinu þar sem við borðum kvöldmat saman.
1. mars (miðvikudagur))
2. mars (fimmtudagur)
Tenerife – Ísland
Ferðalag heim
2. mars (fimmtudagur)
Pictures

Pictures

Q&A

Q&A