Cinque Terre 2023

Þessi ferð er orðin klassík, ertu ekki örugglega búin(n) að fara a.m.k. einu sinni?  Beint flug til Mílanó (ekki innifalið) þar sem við gistum eina nótt en tökum síðan lest til Monterosso al Mare. Þar verða höfuðstöðvar okkar þegar við flökkum um þetta stórkostlega svæði, Cinque Terre.

Cinque Terre eða Þorpin fimm, eru afskekkt sjávarþorp í Ítölskum þjóðgarði og eru á heimsminjaskrá UNESCO. Þorpin urðu vinsæll ferðamannastaður eftir að þau urðu aðgengileg með lestum á 20. öldinni. Þorpin eru þekkt fyrir ótrúlega fegurð og eru fullkominn áfangastaður fyrir göngu- og hlaupaferðir. Svo má ekki gleyma að Ítalir eru þekktir fyrir góðan mat og frábæran ís. Meðalhiti í maí eru 18°C, fullkomið hlaupaveður!

May, 2023
Full price:
234.000 kr.
Registration is closed
Distance:
8 dagar
Ferð
starts after
00
Days
:
00
Hrs
:
00
Min
Um ferðina

Hreyfing og fegurð

  • Markmið ferðarinnar er að njóta þess að hreyfa sig í fallegri náttúru. Dagleiðirnar verða á bilinu 10-25km í fjöllum. Lengstu dagleiðunum er yfirleitt skipt í tvennt þar sem hægt er að fá sér hádegismat og skoða sig um áður en haldið er áfram. Einnig verður í boði að stytta lengstu dagleiðirnar án þess að missa af þorpunum.
  • Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. 
  • Við gistum í bænum Monterosso, huggulegum sjávarbæ. Hótelið er nálægt lestarstöðinni, en lestarferðir verða mikið nýttar. 
  • Stefnt er að því að hlaupa alla dagana nema einn, en þá verður hægt að komast á ströndina, versla eða fara í siglingar. 
  • Gefnar verða út gpx-skrár af hlaupaleiðunum ásamt slóðanúmerunum sem eiga að fylgja.  

Umsagnir

Who's fit

Fyrir alla sem hafa hlaupið reglulega og eru í formi. Ekki þarf að vera hraður hlaupari. Miða má við að vera a.m.k. 3-5 klst á fótum á hverjum degi, en það verður mikið gengið þar sem um fjöll og mikilfenglegt landslag er að ræða. Gengið verður upp flest allar brekkur en hlaupið á jafnsléttu og niður á við. 

Álagið er upplagt fyrir vínaruða í hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa og upp úr eða hlaupara sem fara reglulega 10-15km. Markmiðið er að njóta þess að hreyfa sig í góðu veðri í fallegri náttúru og því ætti enginn að verða útundan. 

Hægt er að komast á hvern áfangastað með þægilegum opinberum samgöngum. Upplagt er því að taka t.d. maka með sem er ekki hlaupandi og hann getur hitt hópinn á áfangastað. Einnig má auðveldlega sleppa úr hlaupi einn og einn dag. 

Ingvar og Þóra Bríet á Cinque Terre svæðinu

Ingvar Hjartarson og Þóra Bríet Pétursdóttir verða fararstjórar ferðarinnar.

Ingvar vari í námi á Ítalíu og þekkir vel til svæðisins og ítölsku menningarinnar. Ingvar hefur verið leiðtogi í hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa síðan 2017, þjálfað á grunnnámskeiðum Náttúruhlaupa ásamt því að þjálfa skokkhópa og byrjendanámskeið hjá Skokkhópi Fjölnis. Ingvar var einnig fararstjóri í Elbu-ferðinni hjá Náttúruhlaupum 2019. Ingvar hefur verið á hlaupum síðan 2010 og er einn af bestu utanvegahlaupurum landsins.

Þóra Bríet fór með í ferðina í fyrra. Hún hefur lengi verið leiðtogi í hlaupasamfélagi Náttúruhlaupa og þjálfari á grunnnámskeiðum.

Innifalið í verði:

  • Gisting – 6 nætur í Monterosso og ein nótt í Mílanó, alls 7 nætur.
  • Matur – Morgunmatur innifalinn alla daga. Kvöldmatur 14. og 19. maí.
  • Allar samgöngur – fyrir utan flug og lest á milli flugvallar og Mílanó.
  • Fararstjóri / leiðsögn allar leiðirnar
  • Dagspassi í Cinque Terre (bara þennan eina dag sem við munum nota hann).

Ekki innifalið í verði:

  • Flug til og frá Mílanó
  • Lest á milli flugvallar og Mílanó
  • Hádegisverður, drykkir, kvöldmatur (fyrir utan tvö kvöld).

Hótelið í Monterosso býður ekki upp á kvöldverð en nokkrir huggulegir veitingastaðir eru í bænum. Því var ákveðið að leyfa fólki að velja sjálft hvar það borðar kvöldmat en þó verður sameiginlegur kvöldmatur fyrsta og síðasta kvöldið í Monterosso.

Dagskrá: Ath. Breytingar geta orðið á dagskrá, hvað varðar lend og uppröðun hlaupaleiða.
13. maí (laugardagur)
Mílanó
– Ferðalag til Mílanó. Hægt að fá beint flug með Icelandair sem lendir síðdegis. Hugsanlega er hægt að fá ódýrara flug með því að fljúga í gegnum London. Þeir sem vilja geta komið fyrr og gert meira úr fríinu.

– Þægilegar lestar – og strætósamgöngur eru á milli flugvallarins og lestastöðvarinnar í Mílanó en hótelið er í göngufæri þaðan. Þeir sem koma með beina fluginu halda hópinn en áætlaður lendingartími vélarinnar er kl. 14:35

– Tékkað inn á hótelið okkar. Dagskráin hefst svo formlega daginn eftir.
13. maí (laugardagur)
14. maí (sunnudagur)
Monterosso
– Eftir morgunmat á hótelinu förum við í létt útsýnisskokk um Mílanó.

– Lest frá Mílanó til Htl Palme, í Monterosso al mare, þar sem gist verður það sem eftir er ferðarinnar. Ferðalagið tekur um 3 klst.

– Tékkað inn á hótelið í Monterosso á milli kl 15-16 og förum í u.þ.b. 8km hlaup frá Monterosso til Levanto. Lest tilbaka.

– Borðum saman kvöldmat á veitingastað nálægt hótelinu.
14. maí (sunnudagur)
15. maí (mánudagur)
Þjóðgarðurinn (8km + 12km)
– Hlaup til Vernazza, Corniglia (8km) og þaðan til Manarola/Riomaggiore (ca 12km fjallahlaup með 700-900 m hækkun.

– Allir taka fyrra hlaupið en hægt að taka lest fyrir þá sem vilja sleppa seinna hlaupinu.
15. maí (mánudagur)
16. maí (þriðjudagur)
Riomaggiore - Portovene - La Spezia (13km + 16km)
– Lest um morguninn til Riomaggiore

– 13km fjallahlaup (Riomaggiore -> Portovenere)

– Sigling til baka til Monterosso.
16. maí (þriðjudagur)
17. maí (miðvikudagur)
Hvíldardagur
– Þessi dagur er frjáls

– Hægt að fara á ströndina, versla, siglingar o.fl.

– 10-15km fjallahlaup í nágreni Monterosso fyrir þá sem vilja, mikið af leiðinni búið að fara áður.
17. maí (miðvikudagur)
18. maí (fimmtudagur)
Dagsferð til Portofino skagans
– Lest til S. Marcherita Ligure.

– 16 eða 25 km hlaup um helstu bæi og útsýnisstaði Portofino skagana.

– Lest til baka til Monterosso að degi loknum.
18. maí (fimmtudagur)
19. maí (föstudagur)
Hlaup meðfram sjávarlengjunni (8-15km)
– Lest til Levanto og hlaupið til norðurs meðfram sjávarlengjunni – 8-15km.

– Borða saman á veitingastað síðasta kvöldið í Monterosso
19. maí (föstudagur)
20. maí (laugardagur)
Mílanó og ferðalagið heim
– Tékkað út af hóteli

– Stutt lestarferð til La Spezia þar sem rúta bíður okkar sem mun keyra okkur alla leið á Malpensa flugvöllin við Milano (ca 3,5 tíma keyrsla). Miðað við flugið með Icelandair sem fer kl. 15:35. Þeir sem ætla hugsanlega að lengja ferðina verða eftir í Milanu, þurfa að láta vita fyrirfram.
20. maí (laugardagur)

Umsagnir

Pictures

Pictures

Q&A

Q&A